FRÉTT FYRIRTÆKI 12. JÚNÍ 2018

Á 12 mánaða tímabili, frá maí 2017 til apríl 2018, voru að jafnaði 17.866 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 635 (3,7%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 191.000 einstaklingum laun sem er aukning um 8.100 (4,4%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Í apríl 2018 voru 2.676 launagreiðendur og um 13.100 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, og hefur launþegum fjölgað um 1.400 (12%) samanborið við apríl 2017. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 5.500 (3%).

Tafla 1. Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar í apríl
  apríl 2018 2017 2018 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar   17.385 182.000 187.500 5.500 3
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 514 8.900 8.600 -300 -3
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.031 16.700 17.000 300 2
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.676 11.700 13.100 1.400 12
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) 491 3.400 3.500 100 4
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) 964 8.600 8.700 200 2
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) 862 14.800 15.200 400 3
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 585 39.800 41.600 1.800 4
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.130 15.800 16.300 500 3
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.754 25.500 25.900 400 2
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 898 12.900 12.900 0 0
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.613 9.300 8.800 -400 -5
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í mars 2018 telst nú vera 17.588 og heildarfjöldi launþega 186.800. Fjöldi launþega jókst um 6.900 (3,8%) frá mars 2017 til mars 2018.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í maí 2018 töldust vera 17.092 launagreiðendur og 185.600 launþegar í mars 2018. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 5.700 (3,2%) frá mars 2017 til mars 2018.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2016 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin. Hagstofa hóf nýlega birtingu á heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum, þ.e. bæði launþegum og öðrum. Þar eru starfandi meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.

Talnaefni
   Einkennandi greinar ferðaþjónustu 
   Allar atvinnugreinar 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.