FRÉTT FYRIRTÆKI 13. ÁGÚST 2018

Á 12 mánaða tímabili, frá júlí 2017 til júní 2018, voru að jafnaði 17.952 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 591 (3,4%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 192.000 einstaklingum laun sem er aukning um 7.500 (4,1%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Í júní 2018 voru 2.704 launagreiðendur og um 14.100 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, og hefur launþegum fjölgað um 900 (7%) samanborið við júní 2017. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 3.500 (2%) en fækkað um 400 (4%) í sjávarútvegi.

Tafla 1. Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar í júní
  júní 2018 2017 2018 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar   17.846 198.900 202.400 3.500 2
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 631 9.200 8.800 -400 -4
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.044 17.900 18.200 300 2
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.704 13.200 14.100 900 7
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) 490 3.600 3.700 100 4
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) 966 9.200 9.300 100 1
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) 868 15.600 15.500 -200 -1
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 576 46.200 47.700 1.500 0
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.127 16.900 17.800 900 6
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.913 30.700 30.700 0 0
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 901 13.400 13.400 0 0
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.600 9.400 9.000 -500 -5
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í apríl 2018 telst nú vera 17.885 og heildarfjöldi launþega 188.200. Fjöldi launþega jókst um 6.300 (3,4%) frá apríl 2017 til apríl 2018.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í júní 2018 töldust vera 17.385 launagreiðendur og 187.500 launþegar í apríl 2018. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 5.500 (3,0%) frá apríl 2017 til apríl 2018.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2016 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin. Hagstofa hóf nýlega birtingu á heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum, þ.e. bæði launþegum og öðrum. Þar eru starfandi meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.