FRÉTT FYRIRTÆKI 04. MAÍ 2018

Á 12 mánaða tímabili, frá apríl 2017 til mars 2018, voru að jafnaði 17.804 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 640 (3,7%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 190.400 einstaklingum laun sem er aukning um 8.300 (4,5%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Í mars 2018 voru 2.620 launagreiðendur og um 12.800 launþegar í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, og hafði launþegum fjölgað um 1.400 (12%) samanborið við mars 2017. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 5.700 (3%).

Tafla 1. Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar í mars
  mars 2018 2017 2018 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar   17.092 179.900 185.600 5.700 3
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 476 8.700 8.700 0 0
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.030 16.500 16.700 200 1
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.620 11.400 12.800 1.300 12
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) 488 3.400 3.500 100 3
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) 961 8.600 8.700 100 1
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) 842 14.600 15.200 600 4
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 572 39.700 41.500 1.800 5
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.110 15.700 16.300 600 4
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.739 24.900 25.300 400 2
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 896 12.900 12.900 0 0
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.586 9.300 8.700 -600 -6
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum


Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í febrúar 2018 telst nú vera 17.438 og heildarfjöldi launþega 185.100. Fjöldi launþega jókst um 7.600 (4,3%) frá febrúar 2017 til febrúar 2018.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í apríl 2018 töldust vera 17.097 launagreiðendur og 184.300 launþegar í febrúar 2018. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 6.800 (3,8%) frá febrúar 2017 til febrúar 2018.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2016 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina. 

Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin. Hagstofa hóf nýlega birtingu á heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum, þ.e. bæði launþegum og öðrum. Þar eru starfandi meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.

Talnaefni
   Einkennandi greinar ferðaþjónustu
   Allar atvinnugreinar 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.