FRÉTT FYRIRTÆKI 07. NÓVEMBER 2017

Á 12 mánaða tímabili, frá október 2016 til september 2017, voru að jafnaði 17.342 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 659 (4,0%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 186.300 einstaklingum laun sem er aukning um 8.600 (4,8%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Launþegum fjölgaði milli ára í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, en dregið hefur úr hraða. Launþegum fækkar í sjávarútvegi. Undanfarin ár hefur launþegum fjölgað mikið í atvinnugreinum tengdum farþegaflutningum með flugi.

Í september 2017 voru 2.631 launagreiðandi og um 12.800 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði launþegum fjölgað um 1.600 (14%) samanborið við september 2016. Í september voru 1.858 launagreiðendur og um 28.500 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði launþegum fjölgað um 2.000 (8%) á einu ári. Launþegum í heild hefur á sama tíma fjölgað um 6.800 (4%).

Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum¹
  Launagreiðendur Launþegar í september
  sept. 2017 2016 2017 Breyting %
           
Allar atvinnugreinar   17.367 183.100 189.900 6.800 4
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 528 9.300 8.900 -500 -5
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.039 17.500 17.400 -100 -1
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.631 11.200 12.800 1.600 14
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 45-47) 2.311 26.600 27.500 900 3
Fjármála- og vátryggingastarfsemi (ÍSAT nr. 64-66) 398 6.400 6.400 0 0
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 566 39.400 40.200 700 2
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.103 16.100 16.900 800 5
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.858 26.500 28.500 2.000 8
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 898 13.000 13.200 200 1
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102) 1.555 9.300 9.200 -100 -1
¹ Nánari lýsing á þessum atvinnugreinaflokkum er að finna í lýsigögnum          


Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum  og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í ágúst 2017 telst nú vera 17.674 og heildarfjöldi launþega 197.600. Fjöldi launþega jókst um 7.700 (4,1 %) frá ágúst 2016 til ágúst 2017.

Þegar fréttatilkynning var gefin út í október 2017 töldust vera 17.511 launagreiðendur og 197.200 launþegar í ágúst 2017. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 7.300 (3,9%) frá júlí 2016 til júlí 2017. 

Fjöldi launþega í fjármála- og vátryggingastarfsemi í ágúst 2017 telst nú vera 6.600 sem er 0,2% lækkun frá sama mánuði árið áður. Þegar tölur um fjölda launþega voru birtar í október 2017 töldust launþegar í þessari atvinnugrein vera 6.800 sem var 2,0% hækkun frá ágúst 2016. Ástæða þessara breytinga er leiðrétting á atvinnugreinaflokkun nokkurra nýskráðra fyrirtækja.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2016 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina. 

Hagstofa Íslands framkvæmir vinnumarkaðsrannsókn (VMR) samfellt allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttaka, fjöldi starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutími eftir atvinnugreinum) ársfjórðungslega. Í VMR eru einnig upplýsingar um sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og hafa fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni:
    Einkennandi greinar ferðaþjónustu
    Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.