FRÉTT FYRIRTÆKI 28. NÓVEMBER 2018

Frá október 2017 til september 2018, voru að jafnaði 18.168 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 615 (3,5%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 193.200 einstaklingum laun sem er aukning um 6.600 (3,5%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Breyting á fjölda launþega milli ára

Í september 2018 voru um 136.400 launþegar í viðskiptahagkerfinu og hefur þeim fjölgað um 2.000 (1,5%) samanborið við september 2017. Í heild hefur launþegum í heild fjölgað um 3.900 (2,1%) á sama tímabili.

Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum
Launagreiðendur Launþegar í september
 sept. 201820172018Breyting%
Allar atvinnugreinar18.318191.500195.5003.9002,1
Viðskiptahagkerfið (ÍSAT nr. 03-82, 95-96)14.452134.400136.4002.0001,5
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102)5378.9008.600-300-2,9
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102)1.05717.40018.0006003,4
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43)2.81513.10013.7006004,9
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45)4973.5003.6001002,6
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46)9928.9009.1001001,6
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47)87115.50015.400-100-0,6
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85)59840.40041.8001.4003,5
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88)1.14517.00017.3003001,5
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79)1.99130.00030.2002000,7
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72)94013.00012.900-100-0,9

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna .

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í ágúst 2018 telst nú vera 18.576 og heildarfjöldi launþega 202.700. Fjöldi launþega jókst um 4.400 (2,2%) frá ágúst 2017 til ágúst 2018.

Þegar tölur voru birtar 12. nóvember sl. töldust vera 18.490 launagreiðendur og 202.500 launþegar í ágúst 2018. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 4.200 (2,1%) frá ágúst 2017 til ágúst 2018.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hafa verður í huga að í tölum um launþega eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2017 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru, skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Hagstofan hóf nýlega birtingu á heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum, þ.e. bæði launþegum og öðrum. Þar eru starfandi meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.

Talnaefni
Launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Launþegar í öllum atvinnugreinum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.