Frá október 2018 til september 2019 voru að jafnaði 18.536 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 244 (1,3%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 194.300 einstaklingum laun sem er aukning um 900 (0,5%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.
Í september 2019 voru um 131.800 launþegar í viðskiptahagkerfinu og hefur þeim fækkað um 5.300 (-3,8%) samanborið við september 2018. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fækkað um 2.000 (-1,0%). Í helstu atvinnugreinum, sem teljast ekki til viðskiptahagkerfisins, fjölgaði launþegum í „opinberri stjórnsýslu og fræðslustarsemi“ um 2.900 (+6,9%) og í „heilbrigðis- og umönnunarþjónustu“ um 800 (+4,4%).
Fjöldi launagreiðenda og launþega | |||||
Launagreiðendur | Launþegar í september | ||||
sept. 2019 | 2018 | 2019 | Breyting | % | |
Allar atvinnugreinar | 18.428 | 196.200 | 194.100 | -2000 | -1,0 |
Viðskiptahagkerfið (ÍSAT nr. 03-82, 95-96) | 14.538 | 137.100 | 131.800 | -5300 | -3,8 |
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) | 541 | 8.600 | 8.400 | -300 | -3,0 |
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) | 1.024 | 18.000 | 17.600 | -500 | -2,7 |
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) | 2.846 | 13.900 | 13.700 | -200 | -1,3 |
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) | 509 | 3.600 | 3.500 | -100 | -3,8 |
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) | 993 | 9.100 | 9.300 | 100 | 1,3 |
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) | 845 | 15.400 | 15.100 | -300 | -2,2 |
Fjármála- og vátryggingastarfsemi (ÍSAT nr. 64-66) | 379 | 6.100 | 5.900 | -200 | -2,5 |
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) | 580 | 41.800 | 44.600 | 2.900 | 6,9 |
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) | 1.174 | 17.300 | 18.000 | 800 | 4,4 |
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) | 2.083 | 30.800 | 28.200 | -2500 | -8,2 |
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) | 962 | 13.000 | 12.600 | -300 | -2,7 |
Þessar tölur byggja á staðgreiðslugögnum og geta verið misvísandi þegar greiddar eru eingreiðslur sem einnig ná til fyrrverandi starfsmanna, t.d. orlofs- og desemberuppbót. Ef slíkar eingreiðslur koma alltaf í sama mánuði þá jafnast tölurnar út ef horft er á breytingar milli ára. Ef eingreiðslur koma óreglulega valda þær skekkju í samanburði milli ára.
Nokkrir hópar sem hafa lausa kjarasamninga fengu eingreiðslu á tímabilinu júlí til september. Hér er einkum um að ræða opinbera starfsmenn og eingreiðslur skýra að hluta hvers vegna fleiri fá launagreiðslur í opinbera geiranum haustið 2019 en haustið 2018.
Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem hér er byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið um vanmat að ræða þegar launagreiðendur skila ekki upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar eru jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum og í talnaefni um endurskoðun hagtalna.
Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.
Heildarfjöldi launagreiðenda í ágúst 2019 telst nú vera 18.782 og heildarfjöldi launþega um 201.600. Launþegum fækkaði um 1.400 (-0,7%) frá ágúst 2018 til ágúst 2019.
Þegar tölur voru birtar 3. október sl. töldust vera 18.402 launagreiðendur og um 200.500 launþegar í ágúst 2019. Fjöldi launþega var þá talinn hafa minnkað um 2.600 (-1,3%) frá ágúst 2018 til ágúst 2019.
Aðrar hagtölur um svipað efni
Hafa verður í huga að í tölum um launþega eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.
Hagstofa birtir heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum og eru þar taldir með þeir sem greiða sjálfum sér laun. Starfandi eru meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.
Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2017 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.
Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.
Talnaefni
Launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Launþegar í öllum atvinnugreinum