FRÉTT FYRIRTÆKI 12. MAÍ 2023

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2022 er áætlað 81 milljarður sem er 12% aukning frá árinu 2021 en hana má rekja bæði til hærra afurðaverðs og álagsgreiðslna sem voru veittar til landbúnaðarins til þess að bregðast við verðhækkunum á helstu aðföngum í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Áætlað er að um 65% framleiðsluvirðisins teljist til búfjárræktar en um 28% til nytjaplönturæktar.

Gert er ráð fyrir að kostnaður við aðfanganotkun hafi verið um 54 milljarðar króna árið 2022 sem er 14% aukning frá fyrra ári. Áætlunin gerir ráð fyrir svipuðu magni aðfanga en hækkun á verði þeirra. Miðað við þessar forsendur verður aðfanganotkun rúm 66% af heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins sem er svipað hlutfall og á fyrra ári. Rétt er að benda á að mat á aðfanganotkun er háð nokkurri óvissu og þar með verður mat á hlutdeild annarra útgjaldaliða einnig óvisst.

Áætlunin byggir á lokaúttekt fyrir árið 2021 og svo fyrirliggjandi upplýsingum um magn- og verðbreytingar á landbúnaðarvörum árið 2022.

Framleiðsluvirði 72 milljarðar árið 2021
Árið 2021 var heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins metið 72 milljarðar króna. Virði afurða búfjárræktar, þ.e. framleiðsla dýra og dýraafurða, vegur þar langþyngst eða um 65% en virði afurða nytjaplönturæktar vegur um 28%. Tekjur af landbúnaðarþjónustu eru innan við 1% af heildarframleiðsluvirðinu og tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi eru rúm 7%.

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins jókst um 4,4% frá fyrra ári. Framleiðsluverðmæti búfjárræktar jókst um 3,9% en virði nytjaplanta um 3,6%.

Heildaraðfanganotkun árið 2021 nam 46,9 milljörðum króna sem er 7% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn og vegur um 65% af framleiðsluvirðinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.