FRÉTT FYRIRTÆKI 07. JÚNÍ 2024

Heildarfjöldi skráðra gistinátta ferðamanna á Íslandi var um 9,52 milljónir árið 2023 en þær voru um 8,55 milljónir árið 2022. Gistinóttum fjölgaði í flestum landshlutum á milli ára, mest á Suðurlandi (18%) og Vesturlandi (16%) en þó fækkaði þeim bæði á Vestfjörðum (-7,0%) og Austurlandi (-3,6%).

Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 6,57 milljónir árið 2023, um 1,65 milljónir í annarri innigistingu og gistinætur á tjaldsvæðum voru um 1,30 milljónir.

Heildarfjöldi gistinátta árið 2023 jókst því um 11,4% á milli ára. Þar af var 12,3% fjölgun á hótelum og gistiheimilum, 13,1% fjölgun var í annarri innigistingu og 5,0% aukning á tjaldsvæðum.

Aukning á fjölda gistinátta árið 2023 var vegna fjölgunar erlendra ferðamanna. Gistinætur innlendra ferðamanna voru um 1,96 milljónir sem er 0,4% færra en á fyrra ári en gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 14,9% og voru þær um 7,56 milljónir.

Gistinóttum erlendra ferðamanna fækkaði á milli ára á Vestfjörðum (-6,0%) en þeim fjölgaði annars fyrir alla landshluta. Mest fjölgun þeirra var á Suðurlandi (23,9%), Suðurnesjum (19,1%) og Vesturlandi (17,0%). Á höfuðborgarsvæðinu var fjölgunin um 11,7% á milli ára. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði áberandi mest á Vesturlandi (13,2%) en þeim fækkaði nokkuð á Austurlandi (-16,1%), Suðurnesjum (-12,2%) og Vestfjörðum (-8,8%).

Hagstofa Íslands birtir mánaðarlega fyrstu áætlun um gistingu á öllum tegundum gististaða í fyrri mánuði. Þessar tölur hafa nú verið uppfærðar. Samkvæmt fyrstu áætlunum var heildarfjöldi skráðra gistinátta árið 2023 um 9.950.000 en endanlegur fjöldi reyndist 9.519.000 eða um 4,3% minni. Gistinætur innlendra ferðamanna reyndust 8,7% færri en við upphaflegar áætlanir en gistinætur erlendra ferðamanna 3,1% færri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.