FRÉTT FYRIRTÆKI 26. FEBRÚAR 2026

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 7,0% í janúar 2026 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 274.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 294.000 á sama tíma árið 2025. Fækkun gistinátta má nær alfarið rekja til samdráttar á höfuðborgarsvæðinu en þar fækkaði gistinóttum um 10,8% eða tæplega 20.500. Á Austurlandi var einnig hlutfallslega mikil fækkun eða 29,7% auk þess sem 18,3% fækkun var á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 10,3% en minni breytingar voru á Suðurlandi (1,2%) og Suðurnesjum (2,0%).

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 245.000, eða 90% af gistinóttum hótela, og var það 4,3% fækkun frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 28.000 sem var 25,1% minna en í janúar árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bretum eða tæpar 62 þúsund og fækkaði þeim um 1,1% á milli ára. Þá fækkaði einnig gistinóttum Bandaríkjamanna (49 þúsund) um 21,8% og Kínverja (25 þúsund) um 9,1%.

Framboð hótelherbergja jókst um 1,0% á landinu í janúar. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Austurlandi eða um 23,9%. Þá var einnig 14,0% aukning á Suðurlandi. Í öðrum landshlutum var fækkun þar sem helst má nefna 13,2% fækkun á Norðurlandi. Á Suðurnesjum fækkaði herbergjum um 5,1% og 2,0% á höfuðborgarsvæðinu. Nær óbreyttur fjöldi var á Vesturlandi og Vestfjörðum (-0,1%). Alls voru 165 hótel starfandi í janúar 2026 með 11.599 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 161 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 57 hótel með alls 5.442 herbergi og 50 á Suðurlandi með 3.026 herbergi.

Herbergjanýting dróst saman um 4,1 prósentustig á landinu í heild. Mest minnkaði nýtingin á Austurlandi (-6,5 prósentustig) og höfuðborgarsvæðinu (-6,1 prósentustig). Þá var einnig 4,9 prósentustiga minnkun á Suðurlandi og 3,7 prósentustiga minnkun á Vesturlandi og Vestfjörðum. Á Suðurnesjum batnaði nýtingin um 3,5 prósentustig auk þess sem 3,3 prósentustiga aukning var á Norðurlandi. Í janúar var mesta nýtingin á höfuðborgarsvæðinu (56,1%) og því næst á Suðurnesjum (49,9%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í janúar rúmlega 359.000. Þetta var 10,4% fækkun miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 401.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 295.000 (274.000 á hótelum og 21.000 á gistiheimilum) en tæplega 65.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Allar tölur fyrir 2025 og 2026 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir janúar 2026.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.