Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 2,8% í mars 2026 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 432.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 420.000 á sama tíma árið 2025. Alls fjölgaði gistinóttum á hótelum því um tæplega 12 þúsund á milli ára.
Mest var aukningin á Suðurlandi þar sem fjöldi gistinátta jókst um ríflega 13.500, eða 12,6%, en þá fjölgaði gistinóttum einnig um 7,9% á Suðurnesjum. Í öðrum landshlutum var hins vegar fækkun. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði þeim um 10,1%, á Austurlandi um 6,9% og á Norðurlandi um 5,8%. Litlar breytingar voru á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum fækkaði um 0,1%.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 385.000, eða 89% af gistinóttum hótela, og var það 4,9% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 47.000 sem var 11,4% minna en í mars árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 97 þúsund og fækkaði þeim um 12,9% á milli ára. Aftur á móti fjölgaði gistinóttum Breta (70 þúsund) um 13,9% og Kínverja (34 þúsund) um 36,3%.
Framboð hótelherbergja jókst um 2,6% á landinu í mars. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Suðurlandi eða um 15,9%. Á höfuðborgarsvæðinu var lítilsháttar aukning eða um 1,9%. Í öðrum landshlutum fækkaði fjölda hótelherbergja og dróst framboðið mest saman á Austurlandi um 22,4%. Á Suðurnesjum fækkaði herbergjum um 5,4%, á Vesturlandi og Vestfjörðum um 4,8% og á Norðurlandi um 2,6%. Alls voru 175 hótel starfandi í mars 2026 með 12.353 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 172 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 58 hótel með alls 5.659 herbergi og 54 á Suðurlandi með 3.192 herbergi.
Herbergjanýting dróst saman um 0,4 prósentustig á landinu í heild og var minnkun í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum þar sem nýtingin jókst um 7,3 prósentustig og Austurlandi þar sem aukningin var 4,0 prósentustig. Á Suðurlandi dróst herbergjanýting saman um 2,6 prósentustig og á Vesturlandi og Vestfjörðum um 2,5 prósentustig. Þá var nýting herbergja minni um 1,4 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu og um 1,0 prósentustig á Norðurlandi. Í mars var mesta nýtingin aftur sem áður á höfuðborgarsvæðinu (71,8%) og því næst á Suðurnesjum (68,1%).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í mars tæplega 656.000. Þetta var 4,0% fjölgun miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 630.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 490.000 (tæplega 432.000 á hótelum og 58.000 á gistiheimilum) en rúmlega 166.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Um gögnin
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árin 2025 og 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru áætluð fyrir árin 2025 og 2026. Tölur um gistinætur hótela í mars 2026 eru bráðabirgðatölur.