FRÉTT FYRIRTÆKI 29. JÚNÍ 2009

Í maí 2009 voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 74 fyrirtæki í maí 2008, sem jafngildir tæplega 11% fækkun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 20 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 9 í heild- og smásöluverslun. Fyrstu fimm mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 413 en fyrstu fimm mánuði ársins 2008 voru 301 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir rúmlega 37% aukningu milli ára.

 

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.