FRÉTT FYRIRTÆKI 27. OKTÓBER 2009

Í september 2009 voru 86 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 52 fyrirtæki í september 2008, sem jafngildir rúmlega 65% fjölgun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot, eða 29, í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 9 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 641 en fyrstu níu mánuði ársins 2008 voru 522 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir tæplega 23% aukningu milli ára.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.