FRÉTT FYRIRTÆKI 10. FEBRÚAR 2023

Af 383 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta 2022, voru 148 með virkni á fyrra ári, 29% færri en 2021 þegar þau voru 208. Þar af voru 48 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (21% fækkun), 20 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (41% fækkun), 22 í einkennandi greinum ferðaþjónustu (39% fækkun) og 58 í öðrum atvinnugreinum (25% fækkun).

Þegar tekin eru saman þau fyrirtæki sem lýst voru gjaldþrota árið 2022 var fjöldi launamanna hjá þeim um 836 að jafnaði árið áður. Þetta er um 35% færra en 2021 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru að jafnaði 1.289. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota árið 2022 minni en árið 2021 í öllum atvinnugreinaflokkum.

Samtals voru 45 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í desember síðastliðnum. Af þeim var 21 með virkni á síðasta ári, það er annað hvort með launafólk samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 50% fleira en í desember 2021.

Hjá fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fjórða ársfjórðungi 2022 (október-desember) var fjöldi launamanna að jafnaði um 447 á fyrra ári, eða ríflega tvöfalt fleiri en á fjórða ársfjórðungi 2021 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru að jafnaði um 205. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota á fjórða ársfjórðungi 2022 meiri en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum atvinnugreinaflokkum, nema í heild- og smásöluverslun þar sem þau voru nánast þau sömu.

Um gögnin
Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu. Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Einnig er tekin saman gjaldþrotatölfræði fyrir einkennandi greinar ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, að viðbættum flokkunum þjónustustarfsemi tengd flutningi með flugi (H52.23) og nuddstofur, sólbaðsstofur, gufuböð o.þ.h. (S96.04). Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.