FRÉTT FYRIRTÆKI 24. APRÍL 2023

Af 418 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2023 (janúar-mars), voru 110 með virkni á fyrra ári, nærri ferfalt fleiri en á sama tímabili árið 2022 þegar þau voru 29. Þar af voru 35 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 13 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, 15 í einkennandi greinum ferðaþjónustu og 47 í öðrum atvinnugreinum.

Fyrirtæki sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2023 höfðu að jafnaði um 423 launamenn árið áður sem er ríflega tvöfalt fleira en á fyrsta ársfjórðungi 2022 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru um 185. Gjaldþrot höfðu minni áhrif í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð en á sama ársfjórðungi 2022, hvort sem miðað er við fjölda launafólks á fyrra ári (-29%) eða virðisaukaskattskylda veltu (-18%). Þess utan má merkja margföldun áhrifa gjaldþrota á fyrsta ársfjórðungi 2023 borið saman við 2022 í öllum helstu atvinnugreinaflokkum og má til dæmis nefna að fjöldi launafólks á fyrra ári í einkennandi greinum ferðaþjónustu fór úr 57 í 151 frá sama ársfjórðungi 2022. Ef hins vegar er borið saman við fyrsta ársfjórðung 2021 var fjöldi launafólks gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári um 10% meiri en þá var.

Samtals voru 170 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í mars síðastliðnum. Af þeim voru 50 með virkni á fyrra ári, það er annað hvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er ríflega ferfalt meira en í mars 2022. Fjöldi starfsfólks gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári jókst hins vegar úr 130 í 153 eða um átján prósent.

Um gögnin
Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu. Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum auk einkennandi greina ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.