Af 82 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum ársfjórðungi 2022 (apríl-júní), voru 18 með virkni á fyrra ári, 75% færri en á sama tímabili árið 2021 þegar þau voru 72. Þar af voru fimm í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, tvö í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, tvö í einkennandi greinum ferðaþjónustu og níu í öðrum atvinnugreinum.
Fyrirtæki sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum ársfjórðungi 2022 höfðu að jafnaði um 101 launamann árið áður sem er um 80% fækkun frá öðrum ársfjórðungi 2021 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru 498. Hvort sem miðað er við fjölda launafólks eða virðisaukaskattskylda veltu á fyrra ári má merkja minni áhrif gjaldþrota á öðrum ársfjórðungi 2022 en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum helstu atvinnugreinaflokkum.
Samtals voru 28 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í júní síðastliðnum. Af þeim voru níu með virkni á fyrra ári, það er annað hvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 68% fækkun frá júní 2021.
Um gögnin
Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu. Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum auk einkennandi greina ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.