FRÉTT FYRIRTÆKI 27. APRÍL 2021

Samtals voru 149 fyrirtæki sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins tekin til gjaldþrotaskipta í mars síðastliðnum. Af þeim voru 25 með virkni á fyrra ári, það er annað hvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 36% fækkun frá mars 2020.

Af 290 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2021 (janúar-mars), voru 49 með virkni á fyrra ári, 50% færri en á sama tímabili árið 2020 þegar þau voru 98. Þar af voru tíu í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (72% fækkun), sex í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (71% fækkun), 12 í einkennandi greinum ferðaþjónustu (20% fjölgun) og 21 í öðrum atvinnugreinum (32% fækkun).

Fyrirtæki sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2021 höfðu um 387 launamenn að jafnaði árið áður sem er um 57% fækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2020 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru 897. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota á fyrsta ársfjórðungi 2021 minni en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum atvinnugreinaflokkum. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var launafólk á fyrra ári til dæmis um 88 sem er 72% fækkun frá sama tímabili 2020 og í einkennandi greinum ferðaþjónustu var fjöldinn um 84 eða 36% færri.

Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu. Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum auk einkennandi greina ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.