FRÉTT FYRIRTÆKI 26. APRÍL 2022

Af 139 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2022 (janúar-mars), voru 27 með virkni á fyrra ári, 49% færri en á sama tímabili árið 2021 þegar þau voru 53. Þar af voru ellefu í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (einu fleiri en á sama tímabili 2021), fjögur í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (tveimur færri en 2021), sjö í einkennandi greinum ferðaþjónustu (46% fækkun) og fimm í öðrum atvinnugreinum (79% fækkun).

Fyrirtæki sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2022 höfðu um 184 launamenn að jafnaði árið áður sem er um 52% fækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2021 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru 384. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári má merkja aukin áhrif gjaldþrota á fyrsta ársfjórðungi 2022 Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, þar sem launamenn á fyrra ári voru um 109, eða 24% fleiri en fyrir sama tímabil 2021. Þar fyrir utan voru áhrif gjaldþrota, mælt í fjölda launamanna á fyrra ári, minni en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum atvinnugreinaflokkum.

Samtals voru 53 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í mars síðastliðnum. Af þeim voru tólf með virkni á fyrra ári, það er annað hvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 60% fækkun frá mars 2021.

Um gögnin
Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu. Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum auk einkennandi greina ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.