FRÉTT FYRIRTÆKI 26. OKTÓBER 2021

Af 149 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á þriðja ársfjórðungi 2021 (júlí-september), voru 39 með virkni á fyrra ári, 36% færri en á sama tímabili árið 2020 þegar þau voru 61. Þar af voru 10 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (44% fækkun), 12 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (71% fjölgun), 7 í einkennandi greinum ferðaþjónustu (56% fækkun) og tíu í öðrum atvinnugreinum (50% fækkun).

Að jafnaði var fjöldi launamanna um 208 árið áður hjá fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á þriðja ársfjórðungi 2021. Þetta er um 59% fækkun frá þriðja ársfjórðungi 2020 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru að jafnaði 503. Fjöldi launafólks fyrirtækja í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum var 32 á fyrra ári sem er nærri þrefalt fleira en fyrir gjaldþrot á sama tímabili 2020 (11). Mælt í fjölda launafólks á síðasta ári voru áhrif gjaldþrota á þriðja ársfjórðungi 2021 annars minni en á sama ársfjórðungi árið áður í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, einkennandi greinum ferðaþjónustu og í öðrum atvinnugreinaflokkum.

Samtals voru 99 fyrirtæki sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins tekin til gjaldþrotaskipta í september síðastliðnum. Af þeim voru 27 með virkni á síðasta ári, það er annað hvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 7% fækkun frá september 2020.

Um gögnin
Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu. Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum auk einkennandi greina ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.