FRÉTT FYRIRTÆKI 14. FEBRÚAR 2024

Af 1.222 fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta 2023, voru 406 með virkni á fyrra ári, 165% fleiri en 2022 þegar þau voru 153. Gjaldþrot virkra fyrirtækja voru um þrefalt fleiri bæði í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, þar sem þau voru 150, og í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum þar sem þau voru 57. Gjaldþrot í einkennandi greinum ferðaþjónustu voru 56, eða 155% fleiri en á fyrra ári, og í öðrum atvinnugreinum voru þau 143 eða 131% fleiri en á fyrra ári.

Þegar tekin eru saman þau fyrirtæki sem lýst voru gjaldþrota árið 2023 var fjöldi launamanna að jafnaði árið áður um 1.991. Þetta er um 139% fleira en 2022 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru að jafnaði 834. Hvort sem miðað er við fjölda launafólks eða virðisaukaskattskylda veltu á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota árið 2023 meiri en árið 2022 í öllum atvinnugreinaflokkum.

21 fyrirtæki með virkni á fyrra ári gjaldþrota í desember
Samtals voru 56 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í desember síðastliðnum. Af þeim var 21 með virkni á síðasta ári, það er annað hvort með launafólk samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 9% færra en í desember 2022.

704 launamenn hjá gjaldþrota fyrirtækjum á fjórða ársfjórðungi
Hjá fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fjórða ársfjórðungi 2023 (október-desember) var fjöldi launamanna að jafnaði um 704 á fyrra ári eða 56% fleiri en á fjórða ársfjórðungi 2022 þegar þeir voru um 450. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota á fjórða ársfjórðungi 2023 fleiri en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum helstu atvinnugreinaflokkum (byggingarstarfsemi, verslun og ferðaþjónustu) en í öðrum atvinnugreinum voru áhrifin minni.

Um gögnin
Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Einnig er tekin saman gjaldþrotatölfræði fyrir einkennandi greinar ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, að viðbættum flokkunum þjónustustarfsemi tengd flutningi með flugi (H52.23) og nuddstofur, sólbaðsstofur, gufuböð o.þ.h. (S96.04). Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Hagstofa Íslands mun framvegis gefa út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja á þriggja mánaða fresti. Þær munu birtast að jafnaði innan 30 daga frá því að ársfjórðungi lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna frá fyrri mánuði verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.