FRÉTT FYRIRTÆKI 27. ÁGÚST 2015

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2014 til júlí 2015, hefur fjölgað um 11% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.219 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 38% á síðustu 12 mánuðum.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2014 til júlí 2015, hafa dregist saman um 15% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 719 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í framleiðslu hefur fækkað mest, eða um 34% á síðustu 12 mánuðum.

Nýskráningar og gjaldþrot
  Júlí   Ágúst - Júlí   
  2015 2014 % 2014-2015 2013-2014 %
Nýskráningar ehf og hf.
Alls 176 189 -7 2.219 1.994 11
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   8 11 -27 95 81 17
C Framleiðsla  8 5 60 85 77 10
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   23 29 -21 273 198 38
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   21 24 -13 273 283 -4
H Flutningar og geymsla   5 4 25 43 48 -10
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   13 8 63 147 110 34
J Upplýsingar og fjarskipti  17 27 -37 173 182 -5
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   23 26 -12 316 319 -1
L Fasteignaviðskipti   28 16 75 291 241 21
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   14 19 -26 228 171 33
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   8 10 -20 166 155 7
             
Gjaldþrot
Alls 26 53 -51 719 848 -15
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   1 1 0 23 25 -8
C Framleiðsla  - 4 - 43 65 -34
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   7 12 -42 144 157 -8
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   3 5 -40 122 156 -22
H Flutningar og geymsla   1 2 -50 23 29 -21
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   3 4 -25 54 64 -16
J Upplýsingar og fjarskipti  1 2 -50 37 41 -10
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   3 6 -50 52 62 -16
L Fasteignaviðskipti   3 6 -50 87 97 -10
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   2 5 -60 65 62 5
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   2 2 0 33 33 0


Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.