FRÉTT FYRIRTÆKI 15. MAÍ 2014

Í lok árs 2013 voru konur 25,1% stjórnarmanna fyrirtækja sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja var til samanburðar 21,9% árið 1999 og 22,9% árið 2008. Konum hefur fjölgað mikið í stjórnum stærri fyrirtækja undanfarin ár. Árið 2013 voru konur ríflega 30% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri til samanburðar við tæplega 15% árið 2008. Skýring á þessum miklu breytingum má rekja til nýrra laga um kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja.

Fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn eru tæplega 98% af fjölda fyrirtækja sem greiða laun. Athygli vekur að hlutfall kynja í stjórnum þeirra fyrirtækja hefur lítið breyst á síðustu árum.

Nánari upplýsingar um hlutfall stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra starfandi fyrirtækja eftir stærð og atvinnugreinum er að finna á vef Hagstofunnar.

Talnaefni

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.