Fyrirtæki teljast hætt starfsemi hafi þau hvorki starfsmenn né rekstrartekjur í tvö almanaksár. Árið 2016 var síðasta rekstrarár 3.022 fyrirtækja sem voru samanlagt með 19 milljarða í rekstrartekjur og 2.700 starfsmenn, en með fyrirtæki er einnig átt við einstaklinga með rekstur á eigin kennitölu.
Þegar skoðað er hlutfall fyrirtækja sem hætta starfsemi af heildarfjölda virkra fyrirtækja í viðkomandi atvinnugrein er hlutfallið hæst í tækni- og hugverkaiðnaði, eða 11%, árið 2016. Hlutfall fyrirtækja sem hættu starfsemi í byggingarstarfsemi, einkennandi greinum ferðaþjónustu og heild- og smásöluverslun var 9% en lægst var hlutfallið í sjávarútvegi og í framleiðslugreinum eða 8%.
Fjöldi fyrirtækja sem hætti starfsemi, fjöldi starfsmanna og rekstrartekjur eftir atvinnugreinum árin 2011 – 2016 | |||||
Atvinnugrein/ atvinnugreinahópur | Ár | Hlutfall af virkum fyrirtækjum | Fjöldi fyrirtækja | Fjöldi starfsmanna, ársmeðaltöl | Rekstrartekjur, ma. kr. |
Viðskiptahagkerfið að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi | 2011 | 10% | 2713 | 2851 | 18,31 |
2012 | 10% | 2652 | 2768 | 25,62 | |
2013 | 9% | 2566 | 2468 | 18,36 | |
2014 | 10% | 2799 | 2698 | 21,9 | |
2015 | 10% | 2859 | 2865 | 31,99 | |
2016 | 10% | 3022 | 2735 | 19,05 | |
Sjávarútvegur | 2011 | 8% | 119 | 133 | 0,81 |
2012 | 7% | 108 | 195 | 1,8 | |
2013 | 8% | 116 | 129 | 1,5 | |
2014 | 8% | 115 | 106 | 0,58 | |
2015 | 8% | 120 | 139 | 1,49 | |
2016 | 8% | 112 | 92 | 0,7 | |
Framleiðsla án fiskvinnslu | 2011 | 8% | 150 | 174 | 1,5 |
2012 | 9% | 165 | 219 | 1,24 | |
2013 | 7% | 132 | 176 | 1,42 | |
2014 | 8% | 144 | 188 | 1,6 | |
2015 | 6% | 105 | 143 | 1,53 | |
2016 | 8% | 151 | 120 | 0,64 | |
Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 2011 | 12% | 524 | 680 | 4,1 |
2012 | 10% | 446 | 492 | 3,8 | |
2013 | 10% | 439 | 454 | 2,33 | |
2014 | 10% | 472 | 518 | 4,5 | |
2015 | 10% | 479 | 431 | 3,05 | |
2016 | 9% | 474 | 464 | 3,24 | |
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 2011 | 8% | 328 | 334 | 3,54 |
2012 | 9% | 350 | 313 | 4,19 | |
2013 | 9% | 356 | 337 | 3,64 | |
2014 | 9% | 379 | 361 | 3,75 | |
2015 | 9% | 359 | 456 | 10,67 | |
2016 | 9% | 376 | 380 | 4,33 | |
Einkennandi greinar ferðaþjónustu1 | 2011 | 8% | 200 | 327 | 1,73 |
2012 | 8% | 196 | 401 | 8,56 | |
2013 | 7% | 196 | 283 | 1,56 | |
2014 | 8% | 235 | 301 | 2,45 | |
2015 | 8% | 261 | 335 | 2,09 | |
2016 | 9% | 348 | 409 | 2,45 | |
Tækni- og hugverkaiðnaður2 | 2011 | 12% | 222 | 216 | 0,74 |
2012 | 12% | 220 | 202 | 1,15 | |
2013 | 10% | 187 | 188 | 0,76 | |
2014 | 13% | 260 | 275 | 1,64 | |
2015 | 12% | 239 | 252 | 2,55 | |
2016 | 11% | 235 | 199 | 0,71 |
Þegar skoðað er hlutfall fyrirtækja sem hætta starfsemi með tilliti til starfsaldurs fyrirtækja er hlutfallið nokkuð stöðugt á milli ára. Hæst er hlutfallið hjá ungum fyrirtækjum (0 til 5 ára) eða á bilinu 65-71% árin 2011-2016 en var 68% árin 2014-2016.
Flest þessara fyrirtækja voru lítil. Þannig voru ríflega 95% þeirra með 0-1 starfsmann og námu samanlagðar rekstrartekjur þeirra rúmlega 12,4 milljörðum. Fyrirtæki sem höfðu tvo eða fleiri starfsmenn á síðasta rekstrarári sínu voru tæp 5% en samanlagðar tekjur þeirra voru rúmir 6,6 milljarðar árið 2016.
Um gögnin
Tölfræði um lýðfræði fyrirtækja byggir á samræmdri aðferðafræði Eurostat og OECD og er því samanburðarhæf við fyrirtækjatölfræði í öðrum löndum Evrópu. Tölfræðin byggir á rekstrarframtölum fyrirtækja og einstaklinga. Hún nær til einkageirans utan landbúnaðar, fjármála- og vátryggingastarfsemi. Undanskilin er opinber stjórnsýsla, heilbrigðis- og félagsþjónusta, fræðslustarfsemi, menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi auk starfsemi félagasamtaka.
Fyrirtæki teljast hætt starfsemi hafi þau hvorki starfsmenn né rekstrartekjur í tvö almanaksár. Þegar rekstur fyrirtækis færist á milli kennitalna telst það ekki vera nýtt fyrirtæki nema tvö af þremur eftirfarandi skilyrðum séu uppfyllt: reksturinn sé í annarri atvinnugrein skv. ÍSAT2008, reksturinn fari fram á annarri starfsstöð eða skipt hafi verið um starfsfólk að megninu til. Einnig eru gerðar leiðréttingar tengdar samruna fyrirtækja og skiptingu.
Upphæðir eru á verðlagi hvers árs.
1 Farþegaflutningar; Veitinga- og gistiþjónusta; Leiga á vélknúnum ökutækjum; Leiga á tómstunda- og íþróttavörum; Ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og önnur bókunarþjónusta. 2 Framleiðsla á efnum og efnavörum; Vopna- og skotfæraframleiðsla; Framleiðsla á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum; Framleiðsla á rafbúnaði og heimilistækjum; Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum og tækjum; Framleiðsla á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum; Framleiðsla annarra farartækja; Framleiðsla á tækjum og vörum til lækninga og tannlækninga; Póst- og boðberaþjónusta; Útgáfustarfsemi; Útvarps- og sjónvarpsútsending; dagskrárgerð; Fjarskipti; Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni; Starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu; Vísindarannsóknir og þróunarstarf.
Tilraunatölfræði um gjaldþrot virkra fyrirtækja