Samtals hófu 3.547 fyrirtæki starfsemi árið 2018 og var heildarfjöldi virkra fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu 31.430. Flest fyrirtæki sem hófu starfsemi voru í byggingarstarfsemi og tengdum greinum eða 622. Í einkennandi greinum ferðaþjónustu hófu 466 fyrirtæki starfsemi árið 2018 samanborið við 652 árið 2017 og 762 fyrirtæki árið 2016.
Fæðingartíðni fyrirtækja sem hlutfall af heildarfjölda virkra fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu var 11% árið 2018. Fæðingartíðni fyrirtækja er breytileg eftir atvinnugreinum. Árið 2018 var fæðingartíðni fyrirtækja lægst 6% í sjávarútvegi og framleiðslu en hæst 12% í tækni- og hugverkaiðnaði.
Tafla 1: Fæðingartíðni fyrirtækja eftir atvinnugreinum 2013 – 2018 | ||||
Atvinnugrein/atvinnugreinahópur | Ár | Fjöldi virkra fyrirtækja | Fjöldi fyrirtækja sem hófu starfsemi | Fæðingartíðni fyrirtækja |
Viðskiptahagkerfið að undanskilinni fjármála- og vátryggingastarfsemi | 2013 | 27394 | 3041 | 11% |
2014 | 28450 | 3574 | 13% | |
2015 | 28922 | 3460 | 12% | |
2016 | 30405 | 4187 | 14% | |
2017 | 31098 | 3840 | 12% | |
2018 | 31430 | 3547 | 11% | |
Sjávarútvegur | 2013 | 1517 | 101 | 7% |
2014 | 1487 | 100 | 7% | |
2015 | 1444 | 93 | 6% | |
2016 | 1445 | 125 | 9% | |
2017 | 1369 | 64 | 5% | |
2018 | 1321 | 74 | 6% | |
Framleiðsla án fiskvinnslu | 2013 | 1827 | 137 | 7% |
2014 | 1818 | 130 | 7% | |
2015 | 1796 | 141 | 8% | |
2016 | 1875 | 186 | 10% | |
2017 | 1875 | 157 | 8% | |
2018 | 1829 | 109 | 6% | |
Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 2013 | 4601 | 514 | 11% |
2014 | 4735 | 578 | 12% | |
2015 | 4845 | 611 | 13% | |
2016 | 5097 | 686 | 13% | |
2017 | 5334 | 677 | 13% | |
2018 | 5412 | 622 | 11% | |
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 2013 | 3983 | 395 | 10% |
2014 | 4049 | 433 | 11% | |
2015 | 4026 | 410 | 10% | |
2016 | 4093 | 446 | 11% | |
2017 | 4107 | 428 | 10% | |
2018 | 4106 | 412 | 10% | |
Einkennandi greinar ferðaþjónustu1 | 2013 | 2640 | 337 | 13% |
2014 | 2946 | 470 | 16% | |
2015 | 3295 | 544 | 17% | |
2016 | 3865 | 762 | 20% | |
2017 | 4194 | 652 | 16% | |
2018 | 4261 | 466 | 11% | |
Tækni- og hugverkaiðnaður2 | 2013 | 1883 | 243 | 13% |
2014 | 2011 | 316 | 16% | |
2015 | 1985 | 268 | 14% | |
2016 | 2054 | 293 | 14% | |
2017 | 2074 | 286 | 14% | |
2018 | 2066 | 239 | 12% |
Með fyrirtækjum er bæði átt við lögaðila og einstaklinga sem hefja rekstur á eigin kennitölu. Fjöldi starfsmanna hjá fyrirtækjum sem hófu starfsemi árið 2018 var rúmlega 3.500 og námu rekstrartekjur þessara fyrirtækja 34,7 milljörðum.
Af þeim 3.041 fyrirtækjum sem hófu starfsemi árið 2013 voru 1.282 eða 42% enn virk árið 2018. Hæst hlutfall fyrirtækja sem voru virk fimm árum eftir að þau hófu starfsemi var í einkennandi greinum ferðaþjónustu en þar hófu 337 fyrirtæki starfsemi árið 2013 og fimm árum síðar voru 188, eða 56%, ennþá í starfsemi. Aftur á móti var lægsta hlutfall fyrirtækja, sem voru virk fimm árum eftir að þau hófu starfsemi, í upplýsinga- og dagskrármiðlun eða 32%.
Tafla 2: Fjöldi fyrirtækja sem hófu starfsemi árið 2013 og voru enn virk árin 2014, 2016 og 2018 eftir atvinnugreinum | |||||
Atvinnugrein/ atvinnugreinahópur | Fyrirtæki sem hófu starfsemi árið 2013 | Fyrirtæki sem hófu starfsemi 2013 og voru virk 2014 | Fyrirtæki sem hófu starfsemi 2013 og voru virk 2016 | Fyrirtæki sem hófu starfsemi 2013 og voru virk 2018 | Hlutfall fyrirtækja sem voru virk fimm árum eftir að þau hófu starfsemi |
Sjávarútvegur | 101 | 82 | 60 | 53 | 52% |
Framleiðsla án fiskvinnslu | 137 | 116 | 84 | 56 | 41% |
Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 514 | 403 | 250 | 196 | 38% |
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 395 | 335 | 224 | 172 | 44% |
Farþegaflutningar | 62 | 55 | 39 | 31 | 50% |
Veitinga- og gistiþjónusta | 155 | 137 | 108 | 92 | 59% |
Upplýsinga- og dagskrármiðlun | 202 | 149 | 90 | 64 | 32% |
Fasteignaviðskipti | 270 | 224 | 171 | 140 | 52% |
Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 587 | 462 | 300 | 226 | 39% |
Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 236 | 198 | 133 | 105 | 44% |
Einkennandi greinar ferðaþjónustu1 | 337 | 297 | 229 | 188 | 56% |
Tækni- og hugverkaiðnaður2 | 243 | 195 | 116 | 93 | 38% |
Rekstrartekjur fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu, sem hófu starfsemi árið 2013 og voru enn virk árið 2018, jukust í heild um tæplega 340% á tímabilinu. Rekstrartekjur þeirra námu tæplega 21 milljarði króna árið 2013 en þær hækkuðu um 69 milljarða og voru tæplega 90 milljarðar króna árið 2018. Fjöldi starfsmanna hjá þessum sömu fyrirtækjum jókst um 120% og fór úr 1.659 starfsmönnum árið 2013 yfir 3.600 starfsmenn árið 2018.
Um gögnin
Tölfræði um lýðfræði fyrirtækja byggir á samræmdri aðferðafræði Eurostat og OECD og er því samanburðarhæf við fyrirtækjatölfræði í öðrum löndum Evrópu. Tölfræðin byggir á rekstrarframtölum fyrirtækja og einstaklinga. Hún nær til einkageirans utan landbúnaðar og fjármála- og vátryggingastarfsemi. Undanskilin er opinber stjórnsýsla, heilbrigðis- og félagsþjónusta, fræðslustarfsemi, menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi ásamt starfsemi félagasamtaka.
Tölur eru nú birtar fyrir tímabilið 2003-2018 og eru brotnar niður eftir atvinnugreinum samkvæmt íslenskri atvinnugreinaflokkun, ÍSAT2008.
Fyrirtæki teljast hefja starfsemi árið sem þau byrja að hafa rekstrartekjur eða launakostnað. Þegar rekstur fyrirtækis færist á milli kennitalna telst það ekki vera nýtt fyrirtæki nema tvö af þremur eftirfarandi skilyrðum séu uppfyllt; reksturinn sé í annarri atvinnugrein skv. ÍSAT2008, reksturinn fari fram á annarri starfsstöð eða skipt hafi verið að megninu til um starfsfólk. Einnig eru gerðar leiðréttingar tengdar samruna fyrirtækja og skiptingu. Fyrirtæki sem hófu starfsemi árið t og voru virk í t+5 eru fyrirtæki sem stofnuð voru á ári t teljast enn í rekstri á ári t+5 ef þau voru virk með tilliti til rekstrartekna og/eða launaðrar atvinnu á hvaða hluta áranna t+1, t+2, t+3, t+4 og t+5 sem er (þ.e. voru enn með starfsemi án breytinga). Við úrvinnslu gagna eru gerðar leiðréttingar.
Upphæðir eru á verðlagi hvers árs.
1) Farþegaflutningar; Veitinga- og gistiþjónusta; Leiga á vélknúnum ökutækjum; Leiga á tómstunda- og íþróttavörum; Ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og önnur bókunarþjónusta.
2) Framleiðsla á efnum og efnavörum; Vopna- og skotfæraframleiðsla; Framleiðsla á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum; Framleiðsla á rafbúnaði og heimilistækjum; Framleiðsla á öðrum ótöldum vélum og tækjum; Framleiðsla á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum; Framleiðsla annarra farartækja; Framleiðsla á tækjum og vörum til lækninga og tannlækninga; Póst- og boðberaþjónusta; Útgáfustarfsemi; Útvarps- og sjónvarpsútsending; Dagskrárgerð; Fjarskipti; Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni; Starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu; Vísindarannsóknir og þróunarstarf.