Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.938 á síðasta ári og hefur nýskráningum því fjölgað um tæp 17% frá árinu 2004 þegar 2.517 ný félög voru skráð. Hlutfallsleg skipting nýskráninga eftir atvinnugreinum er nokkuð jöfn á milli ára en ef nýskráningar eru skoðaðar eftir landsvæðum þá eru rúmlega 72% nýskráðra félaga með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Á árinu 2005 hefur nýskráningum þó fjölgað hlutfallslega mest á Suðurlandi og Suðurnesjum eða um 40% frá fyrra ári.
Nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafélaga 2001–2005 - Hagtíðindi
Talnaefni