Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 3.191 á síðasta ári og hefur nýskráningum því fjölgað um tæp 9% frá árinu 2005 þegar 2.938 ný félög voru skráð. Hlutfallsleg skipting nýskráninga niður á atvinnugreinar er nokkuð jöfn á milli ára en ef nýskráningar eru skoðaðar eftir landsvæðum þá eru rúmlega 71% nýskráðra félaga með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Á árinu 2006 hefur nýskráningum þó fjölgað hlutfallslega mest á Suðurnesjum eða um 20% frá fyrra ári.
Nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafélaga - Hagtíðindi