Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 3.674 á síðasta ári og hefur nýskráningum því fjölgað um rúm 15% frá árinu 2006 þegar 3.191 ný félög voru skráð. Hlutfallsleg skipting nýskráninga niður á atvinnugreinar er nokkuð jöfn á milli ára en ef nýskráningar eru skoðaðar eftir landsvæðum þá eru tæplega 72% nýskráðra félaga með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Á árinu 2007 hefur nýskráningum þó fjölgað hlutfallslega mest á Vesturlandi eða um 45% frá fyrra ári.
Nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafélaga 2003-2007 - Hagtíðindi
Talnaefni