Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.571 á síðasta ári og fækkaði um tæp 30% frá árinu 2007 þegar 3.674 ný félög voru skráð. Flestar nýskráningar flokkaðar eftir atvinnugreinum eru eins og undanfarin ár í starfsemi eignarhaldsfélaga og leigu atvinnuhúsnæðis. Ríflega fjórðungur nýskráðra félaga árið 2008 voru í þessum tveimur atvinnugreinum. Flestar nýskráningar voru sem fyrr á höfuðborgarsvæðinu en nýskráningum fækkaði þó í öllum landshlutum, hlutfallslega mest á Vesturlandi, eða um 46% frá fyrra ári.
Nýskráningar hlutafélaga og einkahlutafélaga 2008 - Hagtíðindi
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.