Á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru nýskráð 993 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 898 einkahlutafélög. Til samanburðar voru 921 nýskráð fyrirtæki á fyrsta ársfjórðungi 2025. Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 150 sem er aukning um 6% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 361 fyrirtæki tekið til gjaldþrotaskipta sem er 22% aukning frá sama tímabil fyrra árs þegar 296 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Þar af voru 107 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2025. Þrátt fyrir að gjaldþrotum í heild hafi fjölgaði fækkaði gjaldþrotum virkra fyrirtækja um 4% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta fjórðungi 2026 störfuðu að jafnaði 515 árið 2025. Eftir atvinnugreinum störfuðu flest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 264, sem er 44% aukning miðað við sama tímabil fyrra árs og litlu færri í einkennandi greinum ferðaþjónustu eða 149.
Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.