FRÉTT FYRIRTÆKI 25. JÚLÍ 2025

Á öðrum ársfjórðungi 2025 voru nýskráð 844 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 738 einkahlutafélög. Til samanburðar voru 865 nýskráningar á öðrum ársfjórðungi 2024. Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 142 sem er fækkun um 5% miðað við sama tímabil fyrra árs.

Á öðrum ársfjórðungi 2025 voru 300 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 74% aukning frá sama tímabili fyrra árs þegar 172 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Af þeim 300 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 99 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2024. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 8% miðað við sama tímabil fyrra árs.

Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum fjórðungi 2025 störfuðu að jafnaði 652 starfsmenn árið 2024. Eftir atvinnugreinum störfuðu flestir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 388, og í einkennandi greinum ferðaþjónustu eða 96.

Samhliða þessari birtingu er uppfærð veftafla yfir heildarfjölda skráðra fyrirtækja og félaga eftir rekstrarformum og atvinnugreinum. Rétt er að árétta að fjöldi skráðra fyrirtækja og félaga er ekki sá sami og fjöldi virkra fyrirtækja.

Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.