Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru nýskráð 854 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 754 einkahlutafélög. Til samanburðar voru 844 nýskráð fyrirtæki á öðrum ársfjórðungi 2025. Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 133 sem er fækkun um 6% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Á öðrum ársfjórðungi 2026 voru 334 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 12% aukning miðað við sama tímabil fyrra árs þegar 299 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Af þeim 334 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 121 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2025. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 23% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á öðrum fjórðungi 2026 störfuðu að jafnaði 645 árið 2025. Eftir atvinnugreinum störfuðu flest fyrirtækin í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 259 sem er 32% fækkun miðað við sama tímabil fyrra árs, og litlu færri í einkennandi greinum ferðaþjónustu, eða 187.
Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.