Á þriðja ársfjórðungi 2025 voru nýskráð 806 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af 722 einkahlutafélög. Til samanburðar voru 815 nýskráningar á þriðja ársfjórðungi 2024. Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 130 sem er fækkun um 8% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Á þriðja ársfjórðungi 2025 voru 113 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 74% aukning frá sama tímabil fyrra árs þegar 65 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Af þeim 113 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta voru 45 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2024. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 36% miðað við sama tímabil fyrra árs.
Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á þriðja fjórðungi 2025 störfuðu að jafnaði 751 starfsmenn árið 2024. Eftir atvinnugreinum störfuðu flestir í einkennandi greinum ferðaþjónustu, eða 589, og í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 88.
Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.
Lýsigögn