FRÉTT FYRIRTÆKI 30. JÚNÍ 2010

Í maí 2010 var 161 nýtt einkahlutafélag (ehf) skráð samanborið við 206 einkahlutafélög í maí 2009. Það jafngildir tæplega 22% fækkun milli ára. Einnig voru skráð 18 samlagsfélög (slf) í maí. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 749 fyrstu fimm mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um tæplega 31% frá sama tímabili árið 2009 þegar 1.085 ný einkahlutafélög voru skráð. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í fasteignaviðskipti en flest samlagsfélög voru skráð í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Í maí 2010 voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 67 fyrirtæki í maí 2009, en það jafngildir tæplega 42% fjölgun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu fimm mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 453 sem er tæplega 10% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 413 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.