Nýskráningar einkahlutafélaga í ágúst 2016 voru 191. Síðustu 12 mánuði, frá september 2015 til ágúst 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 17% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.649 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.259 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu þar sem þeim fjölgaði úr 165 í 245, eða um 48% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna fasteignaviðskipti þar sem nýskráningum fjölgaði úr 299 í 415 (39%) og flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 44 í 61 nýskráningu (39%). Nýskráningum fækkaði hins vegar í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum um 4% frá fyrra tímabili (úr 281 í 270).
Í ágúst 2016 voru 14 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá september 2015 til ágúst 2016, hefur fjölgað um 19% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 867 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 729 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, þar sem þeim fjölgaði úr 124 í 183 frá fyrra tímabili (48%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 89 í 77 (13%).
Nýskráningar og gjaldþrot | ||||||
Ágúst | September–ágúst | |||||
2016 | 2015 | % | 2015–2016 | 2014–2015 | % | |
Nýskráningar ehf. | ||||||
Alls | 191 | 152 | 26 | 2.649 | 2.259 | 17 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 1 | 3 | -67 | 95 | 92 | 3 |
C Framleiðsla | 10 | 6 | 67 | 104 | 86 | 21 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 37 | 18 | 106 | 346 | 279 | 24 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 25 | 22 | 14 | 270 | 281 | -4 |
H Flutningar og geymsla | 6 | 2 | 200 | 61 | 44 | 39 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 6 | 14 | -57 | 172 | 157 | 10 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 19 | 21 | -10 | 187 | 181 | 3 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 10 | 23 | -57 | 371 | 325 | 14 |
L Fasteignaviðskipti | 29 | 22 | 32 | 415 | 299 | 39 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 18 | 4 | 350 | 232 | 220 | 5 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 17 | 8 | 113 | 245 | 165 | 48 |
Aðrar atvinnugreinar | 13 | 9 | 44 | 151 | 130 | 16 |
Gjaldþrot | ||||||
Alls | 14 | 12 | 17 | 867 | 729 | 19 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 0 | 2 | -100 | 24 | 24 | 0 |
C Framleiðsla | 1 | 1 | 0 | 44 | 44 | 0 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 5 | 2 | 150 | 164 | 144 | 14 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 2 | 2 | 0 | 183 | 124 | 48 |
H Flutningar og geymsla | 1 | 1 | 0 | 23 | 24 | -4 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 3 | 0 | - | 60 | 54 | 11 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 0 | 1 | -100 | 52 | 38 | 37 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 0 | 0 | - | 66 | 52 | 27 |
L Fasteignaviðskipti | 2 | 2 | 0 | 77 | 89 | -13 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 0 | 0 | - | 77 | 66 | 17 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 0 | 0 | - | 45 | 33 | 36 |
Aðrar atvinnugreinar | 0 | 1 | -100 | 52 | 37 | 41 |