FRÉTT FYRIRTÆKI 28. SEPTEMBER 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í ágúst 2016 voru 191. Síðustu 12 mánuði, frá september 2015 til ágúst 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 17% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.649 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.259 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu þar sem þeim fjölgaði úr 165 í 245, eða um 48% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna fasteignaviðskipti þar sem nýskráningum fjölgaði úr 299 í 415 (39%) og flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 44 í 61 nýskráningu (39%). Nýskráningum fækkaði hins vegar í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum um 4% frá fyrra tímabili (úr 281 í 270).

Í ágúst 2016 voru 14 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá september 2015 til ágúst 2016, hefur fjölgað um 19% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 867 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 729 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, þar sem þeim fjölgaði úr 124 í 183 frá fyrra tímabili (48%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 89 í 77 (13%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Ágúst   September–ágúst  
  2016 2015 % 2015–2016 2014–2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 191 152 26 2.649 2.259 17
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   1 3 -67 95 92 3
C Framleiðsla  10 6 67 104 86 21
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   37 18 106 346 279 24
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   25 22 14 270 281 -4
H Flutningar og geymsla   6 2 200 61 44 39
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   6 14 -57 172 157 10
J Upplýsingar og fjarskipti  19 21 -10 187 181 3
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   10 23 -57 371 325 14
L Fasteignaviðskipti   29 22 32 415 299 39
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   18 4 350 232 220 5
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   17 8 113 245 165 48
Aðrar atvinnugreinar 13 9 44 151 130 16
             
Gjaldþrot            
Alls 14 12 17 867 729 19
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   0 2 -100 24 24 0
C Framleiðsla  1 1 0 44 44 0
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   5 2 150 164 144 14
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   2 2 0 183 124 48
H Flutningar og geymsla   1 1 0 23 24 -4
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   3 0 - 60 54 11
J Upplýsingar og fjarskipti  0 1 -100 52 38 37
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   0 0 - 66 52 27
L Fasteignaviðskipti   2 2 0 77 89 -13
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   0 0 - 77 66 17
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   0 0 - 45 33 36
Aðrar atvinnugreinar 0 1 -100 52 37 41

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.