Nýskráningar einkahlutafélaga í maí 2016 voru 269. Síðustu 12 mánuði, frá júní 2015 til maí 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 15% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.558 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.224 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 267 í 409, eða um 53% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 166 í 220 (33%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 143 í 178 nýskráningar (24%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum, eða um 7% frá fyrra tímabili (úr 100 í 93).
Skráð gjaldþrot í maí 2016 voru 114. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá júní 2015 til maí 2016, hefur fjölgað um 2% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 787 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 774 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 30 í 43 frá fyrra tímabili (43%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 95 í 67 (29%), en einnig má nefna fækkun gjaldþrota í framleiðslu úr 52 í 41 (21%).
Nýskráningar og gjaldþrot | ||||||
Maí | Júní - maí | |||||
2016 | 2015 | % | 2015-2016 | 2014-2015 | % | |
Nýskráningar ehf. | ||||||
Alls | 269 | 218 | 23 | 2.558 | 2.224 | 15 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 21 | 11 | 91 | 93 | 100 | -7 |
C Framleiðsla | 9 | 7 | 29 | 91 | 84 | 8 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 43 | 28 | 54 | 315 | 274 | 15 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 28 | 22 | 27 | 280 | 275 | 2 |
H Flutningar og geymsla | 6 | 6 | 0 | 53 | 49 | 8 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 18 | 13 | 38 | 178 | 143 | 24 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 11 | 12 | -8 | 179 | 186 | -4 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 40 | 26 | 54 | 363 | 325 | 12 |
L Fasteignaviðskipti | 35 | 30 | 17 | 409 | 267 | 53 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 20 | 19 | 5 | 225 | 225 | 0 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 28 | 35 | -20 | 220 | 166 | 33 |
Aðrar atvinnugreinar | 10 | 9 | 11 | 152 | 130 | 17 |
Gjaldþrot | ||||||
Alls | 114 | 64 | 78 | 787 | 774 | 2 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 3 | 2 | 50 | 21 | 24 | -13 |
C Framleiðsla | 1 | 6 | -83 | 41 | 52 | -21 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 18 | 16 | 13 | 156 | 147 | 6 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 19 | 4 | 375 | 161 | 137 | 18 |
H Flutningar og geymsla | 6 | 2 | 200 | 23 | 23 | 0 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 7 | 1 | 600 | 51 | 62 | -18 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 12 | 8 | 50 | 41 | 38 | 8 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 5 | 3 | 67 | 61 | 53 | 15 |
L Fasteignaviðskipti | 10 | 7 | 43 | 67 | 95 | -29 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 17 | 7 | 143 | 71 | 74 | -4 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 2 | 1 | 100 | 43 | 30 | 43 |
Aðrar atvinnugreinar | 14 | 7 | 100 | 51 | 39 | 31 |
Talnaefni:
Fyrirtæki
Gjaldþrot