FRÉTT FYRIRTÆKI 29. JÚNÍ 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í maí 2016 voru 269. Síðustu 12 mánuði, frá júní 2015 til maí 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 15% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.558 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.224 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 267 í 409, eða um 53% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 166 í 220 (33%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 143 í 178 nýskráningar (24%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum, eða um 7% frá fyrra tímabili (úr 100 í 93).

Skráð gjaldþrot í maí 2016 voru 114. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá júní 2015 til maí 2016, hefur fjölgað um 2% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 787 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 774 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 30 í 43 frá fyrra tímabili (43%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 95 í 67 (29%), en einnig má nefna fækkun gjaldþrota í framleiðslu úr 52 í 41 (21%).

 

Nýskráningar og gjaldþrot
  Maí   Júní - maí  
  2016 2015 % 2015-2016 2014-2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 269 218 23 2.558 2.224 15
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   21 11 91 93 100 -7
C Framleiðsla  9 7 29 91 84 8
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   43 28 54 315 274 15
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   28 22 27 280 275 2
H Flutningar og geymsla   6 6 0 53 49 8
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   18 13 38 178 143 24
J Upplýsingar og fjarskipti  11 12 -8 179 186 -4
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   40 26 54 363 325 12
L Fasteignaviðskipti   35 30 17 409 267 53
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   20 19 5 225 225 0
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   28 35 -20 220 166 33
Aðrar atvinnugreinar 10 9 11 152 130 17
             
Gjaldþrot            
Alls 114 64 78 787 774 2
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   3 2 50 21 24 -13
C Framleiðsla  1 6 -83 41 52 -21
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   18 16 13 156 147 6
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   19 4 375 161 137 18
H Flutningar og geymsla   6 2 200 23 23 0
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   7 1 600 51 62 -18
J Upplýsingar og fjarskipti  12 8 50 41 38 8
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   5 3 67 61 53 15
L Fasteignaviðskipti   10 7 43 67 95 -29
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   17 7 143 71 74 -4
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   2 1 100 43 30 43
Aðrar atvinnugreinar 14 7 100 51 39 31

Talnaefni:
  Fyrirtæki
  Gjaldþrot

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.