FRÉTT FYRIRTÆKI 29. APRÍL 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í mars 2016 voru 261. Síðustu 12 mánuði, frá apríl 2015 til mars 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 14% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.465 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.161 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 230 í 394, eða um 71% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 157 í 204 (30%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 142 í 172 nýskráningar (21%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, eða um 7% frá fyrra tímabili (úr 285 í 266).

Skráð gjaldþrot í mars 2016 voru 120. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá apríl 2015 til mars 2016, hefur fækkað um 15% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 673 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 792 á fyrra tímabili. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 95 í 62 (35%). Einnig má nefna fækkun gjaldþrota í rekstri gististaða og veitingarekstri úr 66 í 45 (32%), auk þess að í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum fækkaði gjaldþrotum úr 26 í 18 (31%). Gjaldþrotum fækkaði frá fyrri 12 mánuðum í öllum helstu atvinnugreinabálkum nema í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði um 6% frá fyrra tímabili (úr 34 í 36).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Mars   Apríl - Mars  
  2016 2015 % 2015-2016 2014-2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 261 226 15 2.465 2.161 14
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   7 10 -30 89 93 -4
C Framleiðsla  9 4 125 93 83 12
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   26 32 -19 293 251 17
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   18 26 -31 266 285 -7
H Flutningar og geymsla   9 5 80 49 48 2
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   29 17 71 172 142 21
J Upplýsingar og fjarskipti  17 11 55 180 184 -2
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   24 39 -38 344 338 2
L Fasteignaviðskipti   39 28 39 394 230 71
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   28 22 27 229 217 6
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   35 16 119 204 157 30
Aðrar atvinnugreinar 20 16 25 152 133 14
             
Gjaldþrot            
Alls 120 76 58 673 792 -15
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   2 4 -50 18 26 -31
C Framleiðsla  7 5 40 42 53 -21
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   22 14 57 140 146 -4
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   31 11 182 136 141 -4
H Flutningar og geymsla   1 0 - 18 21 -14
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   6 4 50 45 66 -32
J Upplýsingar og fjarskipti  5 5 0 34 38 -11
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   11 6 83 48 57 -16
L Fasteignaviðskipti   7 12 -42 62 95 -35
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   10 5 100 55 73 -25
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   11 5 120 36 34 6
Aðrar atvinnugreinar 7 5 40 39 42 -7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.