Nýskráningar einkahlutafélaga í nóvember 2016 voru 222. Síðustu 12 mánuði, frá desember 2015 til nóvember 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 15% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.688 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.328 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 163 í 274, eða um 68% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 45 í 61 nýskráningar (36%) og byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem þeim fjölgaði úr 278 í 355 (28%). Nýskráningum fækkaði í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum um 4% frá fyrra tímabili (úr 282 í 271).
Í nóvember 2016 voru 100 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá desember 2015 til nóvember 2016, hefur fjölgað um 63% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 1.010 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 618 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þeim fjölgaði úr 33 í 91 frá fyrra tímabili (176%). Einnig má nefna að gjaldþrotum fjölgaði frá fyrra tímabili úr 46 í 97 í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi (111%), í upplýsingum og fjarskiptum fjölgaði gjaldþrotum úr 32 í 63 (97%), auk þess sem þeim fjölgaði úr 103 í 202 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (96%). Gjaldþrotum fjölgaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrra tímabili, en þeim fjölgaði hvað hægast í flutningum og geymslu, úr 20 í 22 (10%).
Nýskráningar og gjaldþrot | ||||||
Nóvember | Desember–nóvember | |||||
2015 | 2016 | % | 2014–2015 | 2015–2016 | % | |
Nýskráningar ehf. | ||||||
Alls | 222 | 231 | 4 | 2.328 | 2.688 | 15 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 5 | 6 | 20 | 86 | 99 | 15 |
C Framleiðsla | 7 | 6 | -14 | 92 | 99 | 8 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 30 | 24 | -20 | 278 | 355 | 28 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 24 | 26 | 8 | 282 | 271 | -4 |
H Flutningar og geymsla | 4 | 3 | -25 | 45 | 61 | 36 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 17 | 13 | -24 | 165 | 170 | 3 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 15 | 20 | 33 | 168 | 202 | 20 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 41 | 39 | -5 | 350 | 371 | 6 |
L Fasteignaviðskipti | 38 | 40 | 5 | 349 | 404 | 16 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 21 | 19 | -10 | 223 | 234 | 5 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 11 | 23 | 109 | 163 | 274 | 68 |
Aðrar atvinnugreinar | 9 | 12 | 33 | 127 | 148 | 17 |
Gjaldþrot | ||||||
Alls | 35 | 100 | 186 | 618 | 1.010 | 63 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 2 | 4 | 100 | 23 | 28 | 22 |
C Framleiðsla | 2 | 4 | 100 | 39 | 56 | 44 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 7 | 14 | 100 | 124 | 176 | 42 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 11 | 18 | 64 | 103 | 202 | 96 |
H Flutningar og geymsla | 1 | 1 | 0 | 20 | 22 | 10 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 1 | 5 | 400 | 47 | 59 | 26 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 4 | 9 | 125 | 32 | 63 | 97 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 0 | 12 | - | 33 | 91 | 176 |
L Fasteignaviðskipti | 1 | 11 | 1.000 | 83 | 99 | 19 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 1 | 10 | 900 | 46 | 97 | 111 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 4 | 6 | 50 | 33 | 54 | 64 |
Aðrar atvinnugreinar | 1 | 6 | 500 | 35 | 63 | 80 |
Talnaefni:
Fyrirtæki
Gjaldþrot