FRÉTT FYRIRTÆKI 29. NÓVEMBER 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í október 2016 voru 168. Síðustu 12 mánuði, frá nóvember 2015 til október 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 18% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.679 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.263 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 162 í 262, eða um 62% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 42 í 62 nýskráningar (48%) og byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem þeim fjölgaði úr 266 í 361 (36%). Nýskráningum fækkaði í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum um 5% frá fyrra tímabili (úr 284 í 269).

Í október 2016 voru 98 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá nóvember 2015 til október 2016, hefur fjölgað um 41% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 940 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 666 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þeim fjölgaði úr 39 í 79 frá fyrra tímabili (103%). Einnig hefur verið nokkur fjölgun gjaldþrota í upplýsingum og fjarskiptum, úr 31 í 58 frá fyrra tímabili (87%); í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum fjölgaði gjaldþrotum úr 109 í 195 (79%), auk þess sem þeim fjölgaði úr 54 í 88 í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi (63%). Enginn atvinnugreinabálkur sýndi veruleg merki fækkunar gjaldþrota frá fyrra tímabili, en fjöldi gjaldþrota stóð nánast í stað í rekstri gististaða og veitingarekstri, fór úr 55 í 54 (2% fækkun) og í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum (26 gjaldþrot skráð fyrir hvort tímabil).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Október   Nóvember–október  
  2016 2015 % 2015–2016 2014–2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 168 178 -6 2.679 2.263 18
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   7 4 75 98 83 18
C Framleiðsla  3 5 -40 100 93 8
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   22 14 57 361 266 36
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   19 22 -14 269 284 -5
H Flutningar og geymsla   3 6 -50 62 42 48
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   14 14 0 174 161 8
J Upplýsingar og fjarskipti  12 6 100 197 165 19
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   27 38 -29 373 336 11
L Fasteignaviðskipti   20 31 -35 402 330 22
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   13 16 -19 236 212 11
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   20 7 186 262 162 62
Aðrar atvinnugreinar 8 15 -47 145 129 12
             
Gjaldþrot            
Alls 98 39 151 940 666 41
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   5 3 67 26 26 0
C Framleiðsla  8 4 100 54 45 20
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   19 6 217 168 130 29
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   10 5 100 195 109 79
H Flutningar og geymsla   0 1 -100 22 20 10
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   5 3 67 54 55 -2
J Upplýsingar og fjarskipti  3 1 200 58 31 87
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   10 2 400 79 39 103
L Fasteignaviðskipti   15 3 400 89 87 2
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   8 4 100 88 54 63
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   10 3 233 51 33 55
Aðrar atvinnugreinar 5 4 25 56 37 51

Talnaefni:
  Nýskráningar
  Gjaldþrot

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.