Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá nóvember 2014 til október 2015, hefur fjölgað um 11% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.263 ný félög skráð á tímabilinu. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga er mest í fasteignaviðskiptum, 43% á síðustu 12 mánuðum, en meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna rekstur gististaða og veitingarekstur (35%) og framleiðslu (33%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í flutningum og geymslu, eða um 19% borið saman við næstu 12 mánuði þar áður.
Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá nóvember 2014 til október 2015, hafa dregist saman um 18% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 660 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Hlutfallslega hefur gjaldþrotum í flutningum og geymslu fækkað mest, eða um 35% á síðustu 12 mánuðum, auk þess sem gjaldþrotum í fjármála- og vátryggingastarfsemi hefur fækkað um 33% frá fyrri 12 mánuðum. Gjaldþrotum síðustu tólf mánuði hefur fjölgað mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, eða um 10% borið saman við 12 mánuði þar á undan.
Nýskráningar og gjaldþrot | ||||||
Október | Nóvember - Október | |||||
2015 | 2014 | % | 2014-2015 | 2013-2014 | % | |
Nýskráningar ehf. | ||||||
Alls | 178 | 170 | 5 | 2.263 | 2.036 | 11 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 4 | 7 | -43 | 83 | 89 | -7 |
C Framleiðsla | 5 | 5 | 0 | 93 | 70 | 33 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 14 | 20 | -30 | 266 | 222 | 20 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 22 | 21 | 5 | 284 | 271 | 5 |
H Flutningar og geymsla | 6 | 3 | 100 | 42 | 52 | -19 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 14 | 11 | 27 | 161 | 119 | 35 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 6 | 13 | -54 | 165 | 187 | -12 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 38 | 28 | 36 | 336 | 308 | 9 |
L Fasteignaviðskipti | 31 | 19 | 63 | 330 | 231 | 43 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 16 | 18 | -11 | 212 | 185 | 15 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 7 | 14 | -50 | 162 | 164 | -1 |
Aðrar atvinnugreinar | 15 | 11 | 36 | 129 | 138 | -7 |
Gjaldþrot | ||||||
Alls | 38 | 95 | -60 | 660 | 801 | -18 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 3 | 0 | - | 25 | 24 | 4 |
C Framleiðsla | 4 | 3 | 33 | 45 | 60 | -25 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 6 | 19 | -68 | 129 | 158 | -18 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 5 | 19 | -74 | 106 | 139 | -24 |
H Flutningar og geymsla | 1 | 5 | -80 | 20 | 31 | -35 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 3 | 8 | -63 | 55 | 66 | -17 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 1 | 7 | -86 | 31 | 34 | -9 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 2 | 8 | -75 | 39 | 58 | -33 |
L Fasteignaviðskipti | 3 | 7 | -57 | 87 | 82 | 6 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 4 | 10 | -60 | 54 | 66 | -18 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 3 | 5 | -40 | 33 | 30 | 10 |
Aðrar atvinnugreinar | 3 | 4 | -25 | 36 | 53 | -32 |