FRÉTT FYRIRTÆKI 31. JANÚAR 2025

Fjöldi nýskráðra fyrirtækja í atvinnurekstri árið 2024 var 3.376, þar af 2.913 einkahlutafélög. Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 537 sem þó er fækkun um 13% frá fyrra ári. Í heild drógust nýskráningar fyrirtækja í atvinnurekstri saman um 4% miðað við árið 2023.

Árið 2024 var 851 fyrirtæki tekið til gjaldþrotaskipta sem er 30% fækkun frá fyrra ári þegar 1.220 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Af 851 fyrirtæki sem tekið var til gjaldþrotaskipta í fyrra voru 339 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2023. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fækkaði um 9% frá fyrra ári.

Hjá þeim 339 virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta árið 2024 störfuðu að jafnaði 1.973 starfsmenn árið 2023. Borið saman við fyrra ár var lítil breyting á heildarfjölda launafólks sem gjaldþrotin höfðu áhrif á. Eftir atvinnugreinum störfuðu flestir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 733, og litlu færri í einkennandi greinum ferðaþjónustu eða 638.

Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Lýsigögn

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.