Velta í viðskiptahagkerfinu var rúmlega 4.000 milljarðar króna árið 2017 en var 3.900 milljarðar 2016. Veltan jókst því um 2,6% milli ára. Eigið fé jókst um 6% frá 2016 og var í lok árs 2017 tæplega 3.000 milljarðar. Eiginfjárhlutfall var rúmlega 42% í lok árs og jókst lítillega milli ára.
Í viðskiptahagkerfinu er allur fyrirtækjarekstur á Íslandi fyrir utan lyfjaframleiðslu, fjármála- og vátryggingarstarfsemi og opinbera starfsemi. Rekstrar- og efnahagsreikningar eru unnir úr skattframtölum fyrirtækja og fyrir árið 2017 liggja þar að baki tæplega 39 þúsund framtöl. Hjá þessum 39 þúsund fyrirtækjum eru 124 þúsund launþegar í 444 atvinnugreinum skv. ÍSAT2008-atvinnugreinaflokkun Hagstofunnar.
Helstu breytingar milli ára þegar litið er til hækkunar rekstrartekna eru í fiskeldi, þar sem rekstrartekjur jukust um 4,9 milljarða (34%), mannvirkjagerð 6,2 milljarðar (33%) og starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu 3,7 milljarðar (27%). Meðal atvinnugreina þar sem rekstrartekjur lækkuðu hvað mest voru framleiðsla á kvikmyndum o.fl., 4,2 milljarðar (-18%) og sjávarútvegur þar sem rekstrartekjur lækkuðu um 44 milljarða (-13%).
Mikill vöxtur hefur verið í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og jukust rekstrartekjur um 19% milli áranna 2016 og 2017, úr 299 milljörðum í 356 milljarða. Mikill vöxtur var einnig árið áður og hafa rekstrartekjur í atvinnugreininni vaxið um rúmlega 50% frá 2015. Þá hækkaði launakostnaður í greininni um 19% og virðist hann því haldast í hendur við tekjuaukningu. Fjöldi launþega í greininni hefur vaxið mikið frá árinu 2015 eftir að hafa verið nokkuð stöðugur frá árinu 2009. Nú eru 12.000 launþegar í greininni eða um 36% fleiri en 2015 þegar tæplega 9 þúsund störfuðu í greininni. Hafa ekki fleiri starfað við byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð síðan árið 2008. Eiginfjárhlutfall hækkaði um 2,3 prósentustig milli ára og er 25%, en eigið fé hækkaði um tæplega 30%. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) hækkaði um 22,5%, úr 34 milljörðum í 41 milljarð milli ára.
Rekstrartekjur fyrirtækja í fiskeldi jukust um 34% en þær jukust einnig mikið árið áður og hafa rekstrartekjur í fiskeldi rúmlega tvöfaldast frá árinu 2015. Viðsnúningur hefur því orðið í greininni en hagnaður fyrir fjármagnsliði jókst um rúmlega 2,6 milljarða frá árinu áður og er nú 900 milljónir en tapið nam 1,7 milljörðum árið áður. Eigið fé hefur því aukist um 28% frá fyrra ári, er nú 22 milljarðar, og eiginfjárhlutfall er nú yfir 50%.
Rekstrartekjur fyrirtækja í sjávarútvegi lækkuðu á milli áranna 2016 og 2017. Á móti kemur að rekstrarkostnaður lækkaði einnig og þá voru fjármagnsliðir til lækkunar. Hagnaður samkvæmt ársreikningi lækkaði því á milli ára um 12,2 milljarða (25%). Þá hækkuðu langtímaskuldir sjávarútvegsfyrirtækja um 5,3% og eigið fé jókst um 4,7%.
Einkennandi greinar ferðaþjónustu héldu áfram að vaxa en þó ekki af sama krafti og undanfarin ár. Þannig jukust rekstrartekjur um 6% milli ára, helmingi minna en árið áður, og voru þær 590 milljarðar árið 2017. Launþegum í greininni heldur áfram að fjölga og voru þeir rúmlega 26 þúsund, sem er aukning um 8% milli ára. Þá minnkaði hagnaður fyrir fjármagnsliði um 38%, úr 45 milljörðum í 28 milljarða. Munaði þar mestu um 19% hækkun launakostnaðar meðan aðrir kostnaðarliðir hækkuðu um 7% til 9%.
Valdir liðir úr rekstrar- og efnahagsyfirlitum árin 2016 og 2017 í milljörðum króna | |||||||||
Rekstrartekjur | Eigið fé | Arðgreiðslur | |||||||
2016 | 2017 | Breyting | 2016 | 2017 | Breyting | 2016 | 2017 | Breyting | |
Viðskiptahagkerfið, að undanskilinni lyfjaframleiðslu, fjármála- og vátryggingastarfsemi | 3.916 | 4.020 | 3% | 2.812 | 2.993 | 6% | 113 | 143 | 26% |
Einkennandi greinar ferðaþjónustu | 551 | 589 | 7% | 118 | 131 | 10% | 10 | 12 | 11% |
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum | 649 | 582 | -10% | 122 | 110 | -10% | 10 | 16 | 66% |
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum | 415 | 418 | 1% | 105 | 114 | 8% | 18 | 10 | -47% |
Sjávarútvegur | 329 | 285 | -13% | 301 | 315 | 5% | 14 | 17 | 23% |
Framleiðsla málma | 194 | 220 | 14% | 260 | 216 | -17% | 0 | 15 | - |
Rafmagns-, gas- og hitaveitur | 143 | 149 | 4% | 568 | 595 | 5% | 4 | 4 | 26% |
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 299 | 356 | 19% | 81 | 105 | 30% | 7 | 12 | 58% |
Meðal- og hátækniframleiðsla | 82 | 88 | 7% | 139 | 139 | 1% | 4 | 4 | 0% |
Hátækniþjónusta | 216 | 220 | 2% | 127 | 124 | -3% | 5 | 4 | -27% |
Tækni- og hugverkaiðnaður | 298 | 308 | 4% | 266 | 263 | -1% | 9 | 8 | -16% |
Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 152 | 156 | 2% | 273 | 254 | -7% | 16 | 15 | -4% |
Upphæðir eru á verðlagi hvers árs
Fyrir tímanlegri upplýsingar þá gefur Hagstofa Íslands út tölur um virðisaukaskattskylda veltu eftir atvinnugreinum á tveggja mánaða fresti ásamt mánaðarlegum tölum um fjölda starfandi. Þá eru einnig gefnar út tölur um fjölda launþega og fjölda launagreiðenda.