FRÉTT FYRIRTÆKI 12. NÓVEMBER 2026

Afkoma fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu, án fjármála- og vátryggingastarfsemi, nam tæplega 518 milljörðum króna árið 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum. Það var nær óbreytt niðurstaða frá árinu 2024 þegar þau skiluðu alls 520 milljörðum í hagnað. Dræmur tekjuvöxtur og aukinn fjármagnskostnaður skýrðu samdráttinn en heildartekjur fyrirtækja jukust um aðeins 2,1% á árinu. 1 Vöxtur tekna var jafnframt nokkuð minni en árið 2024 þegar hann var 3,8%.

Af helstu atvinnugreinum landsins var hagnaður mestur í fasteignastarfsemi, einkum leigu atvinnuhúsnæðis. 2 Mest batnaði afkoma í einkennandi greinum ferðaþjónustu og sjávarútvegi auk þess sem vöxtur var í bílasölu. Aftur á móti dróst afkoma mikið saman í framleiðslu málma og skilaði greinin tapi árið 2025 enda styrktist gengi krónunnar umtalsvert á árinu

Í meirihluta atvinnugreina var aukning tekna minni en hækkun verðlags en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,1% á árinu 2025.

Bráðabirgðatölurnar fyrir árið 2025 byggja á fyrstu skilum skattframtala og geta tölurnar breyst eftir því sem fleiri framtöl berast. Við síðustu birtingu var til dæmis talið að tekjur fyrirtækja hefðu aukist um 2,0% árið 2024 en þá var stuðst við gögn frá rúmlega 37 þúsund rekstraraðilum. Nú liggja fyrir gögn frá alls 39 þúsund aðilum fyrir árið 2024 og er talið að tekjur þess árs hafi aukist um 3,8%.

Rekstrarhagnaður jókst en afkoma fjármagnsliða versnaði
Þegar horft er á viðskiptahagkerfið í heild jukust tekjur fyrirtækja árið 2025 um alls 2,1% eða tæpa 152 milljarða króna. Rekstrargjöld jukust minna í krónum talið eða um tæpa 115 milljarða króna (1,8%) og jókst því rekstrarhagnaður viðskiptahagkerfisins um 37 milljarða króna. Afkoma fjármagnsliða versnaði hins vegar töluvert eða um 23,6%, sem hafði neikvæð áhrif á hagnað sem dróst saman um 0,5% á milli ára.

Á efnahagshlið hagkerfisins var helst að nefna aukningu skulda um 5,7%, en hlutfallsleg aukning langtíma- og skammtímaskulda var svipuð. Eignir breyttust lítið eða um 3,6% í heildina en handbært fé fyrirtækja dróst saman um 2,0%. Þá jókst eigið fé um aðeins 1,0%.

Dræmur tekjuvöxtur í flestum greinum
Vöxtur tekna var tiltölulega lítill í flestum helstu atvinnugreinum landsins árið 2025. Mest jukust tekjur í sölu, viðgerðum og viðhaldi vélknúinna ökutækja eða um 25,1%, úr 256 milljörðum króna í 321 milljarð. Þá var einnig 14,7% vöxtur í sjávarútvegi og fiskeldi, þar af 15,0% í sjávarútvegi einum og sér. Í öðrum greinum var vöxturinn minni en hækkun vísitölu neysluverðs og raunar var samdráttur í ferðaþjónustu, byggingarstarfsemi, fasteignastarfsemi og málmframleiðslu.

Í einkennandi greinum ferðaþjónustunnar drógust tekjur saman um 0,8% og námu heildartekjur atvinnugreinahópsins um 988 milljörðum króna. Tiltölulega lítill vöxtur var almennt í undirgreinum ferðaþjónustunnar en það var helst samdráttur um 10,2% í farþegaflutningum með flugi sem dró niður samanlagðar tekjur hópsins. 3 Í veitinga- og gistiþjónustu var 2,5% vöxtur, aðeins 0,5% hjá ferðaskrifstofum, 4,6% í bílaleigu og 5,1% í farþegaflutningum á sjó og landi.

Í tækni- og hugverkaiðnaði var 32,0% vöxtur í starfsemi á sviði upplýsingaþjónustu. Samdráttur um 10,4% í meðal- og hátækniframleiðslu, án lyfjaframleiðslu, dró hins vegar úr heildarvextinum og jukust tekjur í geiranum því aðeins um 0,9%. Loks drógust tekjur saman um 5,0% í framleiðslu málma en gengi krónunnar styrktist mikið á árinu og vel umfram hækkun álverðs.

Misjöfn afkomuþróun í flestum greinum
Afkoma einstakra greina var nokkuð breytileg og ekki alltaf í samræmi við þróun tekna þar sem áhrif kostnaðarliða voru oft ráðandi í rekstrarniðurstöðu fyrirtækja. Af helstu greinum atvinnulífsins skáru tvær atvinnugreinar sig úr með miklar hlutfallslegar breytingar á afkomu milli ára. Annars vegar jókst hagnaður í sölu, viðgerðum og viðhaldi vélknúinna ökutækja, sem skýrðist nær alfarið af auknum tekjum. Hins vegar var mikill samdráttur í afkomu málmframleiðslu vegna minni tekna og neikvæðari fjármagnsliða samhliða óbreyttum rekstrargjöldum.

Í einkennandi greinum ferðaþjónustu batnaði afkoman um 55,1% sem helst má skýra með hagræðingu í rekstri. Þannig dróst vöru- og hráefnisnotkun saman um 5,6% samanborið við 0,1% aukningu í viðskiptahagkerfinu í heild. Þá jókst launakostnaður um 2,6% í ferðaþjónustu en um 4,5% í viðskiptahagkerfinu í heild. Loks batnaði afkoma fjármagnsliða lítillega. Afkoma einstakra greina í ferðaþjónustu var hins vegar mismunandi. Til dæmis dróst hún saman um 49,7% í rekstri gististaða vegna aukinna útgjalda og um 8,2% hjá ferðaskrifstofum. Afkoma batnaði hins vegar um 62,3% hjá veitingastöðum og 87,7% í bílaleigu þar sem þróun kostnaðarliða var hagstæðari.

Tækni- og hugverkaiðnaður skilaði um 8,7 milljörðum króna í hagnað á árinu, sem var 74,1% minna en árið áður. Þar gætti helst áhrifa af tæplega 30 milljarða króna tapi í framleiðslu á lyfjum og efnum til lyfjagerðar vegna neikvæðra áhrifa hlutdeildarfélaga. Aftur á móti hafði hagnaður í meðal- og hátækniframleiðslu, án lyfjaframleiðslu, upp á tæpa 20 milljarða króna áhrif til batnaðar.

Í sjávarútvegi og fiskeldi stuðlaði tekjuaukning að bættri afkomu sem jókst um 38,7%. Þar af skilaði sjávarútvegur einn og sér tæplega 64 milljörðum króna í hagnað, sem var 55,5% aukning á milli ára. Fiskeldi tapaði hins vegar tæpum 15 milljörðum króna þar sem útgjöld jukust mikið, samanborið við tæplega 6 milljarða tap árið áður. Þá jókst hagnaður í fasteignastarfsemi um 13,0% en greinin skilar að jafnaði mestum hagnaði allra atvinnugreina á Íslandi. Í öðrum greinum voru minni breytingar á afkomu.

Birting á öðrum rekstrarupplýsingum
Samfara birtingu á rekstrar- og efnahagsyfirlitum hefur Hagstofa Íslands einnig uppfært aðrar rekstrarupplýsingar samkvæmt evrópskum stöðlum fyrir árin 2008-2024 ásamt bráðabirgðatölum fyrir árið 2025. Gögn í þessum töflum innihalda valdar rekstrarstærðir fyrir virk fyrirtæki, til dæmis framleiðsluverðmæti, vinnsluvirði og kostnað vegna almannatrygginga. Tölurnar eru í samræmi við birtingarskilyrði Eurostat og því að fullu samanburðarhæfar við önnur lönd.

Um gögnin
Fyrir tímanlegri upplýsingar gefur Hagstofa Íslands einnig út tölur um virðisaukaskattskylda veltu eftir atvinnugreinum ásamt mánaðarlegum tölum um fjölda starfandi. Þá eru einnig gefnar út tölur um fjölda launþega og fjölda launagreiðenda

1 Til fjármagnsliða geta auk vaxtatekna og vaxtagjalda talist ýmsar gengisbreytingar á verðbréfum, söluhagnaður af hlutabréfum og hreinar tekjur af fjármálagerningum. Breytingar á einstaka fjármagnsliðum í ákveðnum greinum geta þannig haft töluverð áhrif á heildarniðurstöðuna jafnt til hækkunar sem lækkunar.
2 Til fasteignaviðskipta (fasteignastarfsemi) teljast kaup og sala á eigin fasteignum, leiga íbúðar- og atvinnuhúsnæðis, leiga á landi og landréttindum, fasteignamiðlun og fasteignarekstur. Leigutekjur af atvinnuhúsnæði vega mest í heildartekjum atvinnugreinarinnar. Þá geta mats- og gangvirðisbreytingar fasteigna haft markverð áhrif á tekjur og afkomu rekstraraðila í greininni.
3 Flugfélagið Play (Fly Play hf.) varð gjaldþrota í lok september árið 2025 með tilsvarandi áhrifum á rekstrarniðurstöðu einkennandi greina ferðaþjónustu á Íslandi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.