Hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja, það er með 50 launamenn eða fleiri, þar sem stjórnarmenn voru fjórir eða fleiri, var 41,9% í tilfelli almennra hlutafélaga á árinu 2024 og 38,9% í einkahlutafélögum. Samsvarandi hlutfall var 41,4% og 36,5% á árinu 2023 og hækkar því hlutfall kvenna í stjórnum með fjóra stjórnarmenn eða fleiri á milli ára.
Í stjórnum stórra fyrirtækja með þrjá stjórnarmenn var hlutfall kvenna 33,3% fyrir almenn hlutafélög og 32,5% fyrir einkahlutafélög. Samsvarandi hlutfall var 35,9% og 32,8% á fyrra ári. Í stórum einkahlutafélögum með tvo stjórnarmenn var samsvarandi hlutfall 22,8% en var 25,4% árið 2023.
Í heildina tekið hefur hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja farið hækkandi ár frá ári á síðustu tveimur áratugum þótt það hafi ýmist hækkað eða lækkað svo litlu nemi frá ári til árs fyrir einstakar gerðir stjórnarforma. Þetta sést í ár til dæmis á því hvernig hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja hækkar frá fyrra ári þar sem stjórnarmenn eru fjórir eða fleiri en lækkar heldur fyrir stjórnir þar sem stjórnarmenn eru tveir eða þrír. Almennt má merkja að hlutfall kvenna í stjórnum félaga sé hærra bæði þegar stærð stjórna og stærð fyrirtækja er meiri heldur en minni. Þá er hlutfallið hærra í almennum hlutafélögum en í einkahlutafélögum.
Blandað kynjahlutfall í stjórn
Árið 2010 voru sett lög þar sem kveðið er á um það að þegar stjórnarmenn séu þrír í félagi, þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli, skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skuli hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Þessi lög taka til almennra og opinberra hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu- og sameignarfélaga. Í tilfelli einkahlutafélaga er jafnframt tiltekið að hvort kyn skuli eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórnarmenn eru tveir. Þessi lög tóku gildi í september árið 2013.
Ef litið er til fyrirtækja sem hafa 50 launamenn eða fleiri hefur þeim félögum sem hafa blandaða samsetningu kynja í stjórn farið fjölgandi á undanförnum árum. Árið 2013 var hlutfall félaga þar sem stjórnarmenn voru ekki allir af sama kyni, eða sem höfðu hlutfall kvenna á meðal stjórnarmanna á bilinu 40%-60%, á bilinu 33% (einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir) til 68% (almenn hlutafélög með þriggja manna stjórnir) en fimm árum áður höfðu samsvarandi tölur verið 14% og 39%.
Árið 2024 var þetta hlutfall á bilinu 79,8% (einkahlutafélög með þrjá stjórnarmenn) til 85,4% (almenn hlutafélög með þrjá stjórnarmenn), mismunandi eftir rekstrarformi og stærð stjórnar, fyrir utan einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir, þar sem hlutfall einkahlutafélaga þar sem stjórnarmenn voru ekki báðir af sama kyni var 45,6%. Það hlutfall af stjórnum stórra félaga þar sem hlutfall kvenna er á því bili sem tilgreint er fór heldur lækkandi frá fyrra ári, eða um 1,4 til 1,8 prósentustig, fyrir flestar gerðir stjórna. Þó hækkaði hlutfall stjórna stórra einkahlutafélaga með fjóra eða fleiri stjórnarmenn um 5,3 prósentustig eða úr 75,6% í 80,9%.
Stjórnarformenn og framkvæmdastjórar
Allt frá árinu 1999 hefur verið stöðug en hægfara aukning á hlutfalli kvenna í stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækja. Árið 2024 var þetta hlutfall 24,4%. Svipaða sögu má segja um hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna en í lok árs 2024 var það 25,1% sem er sama hlutfall og árið á undan.
Einn einstaklingur skráður „kynsegin/annað“ í þjóðskrá var framkvæmdastjóri fyrirtækis á árinu 2024. Einnig voru þrír stjórnarmenn með skráninguna „kynsegin/annað“ á árinu 2024, þar af tveir sem stjórnarformenn.
Um gögnin
Þegar tekið er mið af stærð fyrirtækja við skráningu stjórnarmanna í fyrirtækjaskrá Skattsins er miðað við fjölda ársverka sem gefinn er upp í ársreikningum. Við birtingu Hagstofu Íslands á tölum um kynjahlutföll stjórnarmanna fyrirtækja og félaga er á hinn bóginn notast við fjölda launamanna samkvæmt staðgreiðsluskrá þegar metin er stærð fyrirtækja. Því er ekki óeðlilegt að einhver hluti stjórna stórra fyrirtækja samkvæmt tölum Hagstofu Íslands liggi utan þess ramma sem unnið er eftir við skráningu stjórnarmanna í stórum fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins.
Tölur um fjölda stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra eru birtar eftir kyni og aldri, atvinnugrein og stærð fyrirtækis og tölur um stjórnarmenn eru auk þess birtar eftir rekstrarformi og stærð stjórna. Kyn fer eftir skráningu kyns í þjóðskrá. Fylgt er orðalagi sem tekið var upp í samráði við Samtökin '78. Frá síðustu birtingu hafa bæst við ítarlegri gögn um virkni fyrirtækja árið 2023 og hafa fyrri tölur verið uppfærðar með tilliti til þess.