Hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja (þ.e. með 50 launamenn eða fleiri), þar sem stjórnarmenn voru fjórir eða fleiri, var 41,5% í tilfelli almennra hlutafélaga á árinu 2021 og 38,3% í einkahlutafélögum. Í stjórnum með þrjá stjórnarmenn var hlutfall kvenna 34,8% fyrir almenn hlutafélög og 29,3% fyrir einkahlutafélög. Í einkahlutafélögum með tvo stjórnarmenn var hlutfallið 19,7%.
Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja fór hækkandi frá 2008 fram til ársins 2014 en hefur haldist nokkuð óbreytt síðan þá. Almennt má merkja að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hækki með bæði stærð stjórna og félaga (talið í fjölda launamanna). Þá er hlutfallið hærra í almennum hlutafélögum en í einkahlutafélögum.
Ef litið er til fyrirtækja sem hafa 50 launamenn eða fleiri hefur þeim félögum sem hafa blandað hlutfall kynja í stjórn farið fjölgandi á síðustu árum. Árið 2008 var hlutfall þeirra félaga, sem höfðu að minnsta kosti einn stjórnarmann af hvoru kyni (fyrir tveggja og þriggja manna stjórnir) eða höfðu hlutfall kvenna á meðal stjórnarmanna á bilinu 40%-60% (fyrir stjórnir með fjóra eða fleiri stjórnarmenn), á bilinu 14% (einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir) til 39% (almenn hlutafélög með þriggja manna stjórnir).
Á liðnu ári var sama hlutfall á bilinu 72% (einkahlutafélög með fjóra eða fleiri stjórnarmenn) til 89% (almenn hlutafélög með þrjá stjórnarmenn), mismunandi eftir rekstrarformi og stærð stjórnar. Einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir skera sig þó úr þar sem hlutfall einkahlutafélaga með stjórnarmann af sitt hvoru kyni var einungis 34,2% og hefur farið jafnt og þétt lækkandi frá 2018 þegar nærri helmingur félaga með yfir 50 starfsmenn og tvo stjórnarmenn var með stjórnarmenn af sitthvoru kyni.
Rúmur fjórðungur stjórnarmanna fyrirtækja, sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá, voru konur í lok árs 2021 eða 27%. Í stjórnum fyrirtækja þar sem fjöldi launamanna árið 2021 var að jafnaði færri en 50 var hlutfallið 26,6% en 34,8% í stjórnum fyrirtækja með 50 launamenn eða fleiri. Til samanburðar var hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með 50 launamenn eða fleiri 15,4% árið 2008 og 9,5% árið 1999.
Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkar lítillega á milli ára (23,9%) sem fylgir eftir hægfara aukningu allt frá 1999. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var 24,7% í lok árs 2021.
Tölur um fjölda stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra eru birtar eftir kyni og aldri, atvinnugrein og stærð fyrirtækis og tölur um stjórnarmenn eru auk þess birtar eftir rekstrarformi og stærð stjórnar. Frá síðustu birtingu hafa bæst við ítarlegri gögn um virkni fyrirtækja árið 2020 og hafa fyrri tölur verið uppfærðar með tilliti til þess.
Árið 2010 voru sett lög þar sem kveðið er á um það að þegar stjórnarmenn eru þrír í félagi, þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli, skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skuli hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Þessi lög taka til almennra og opinberra hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu- og sameignarfélaga. Í tilfelli einkahlutafélaga er jafnframt tiltekið að hvort kyn skuli eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórnarmenn eru tveir. Þessi lög tóku gildi í september árið 2013.
Þjóðskrá hefur tekið upp kynhlutlausa skráningu einstaklinga. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar var enginn einstaklingur skráður kynhlutlaus í Þjóðskrá sem gegndi stjórnarstörfum á árinu 2021.