FRÉTT FYRIRTÆKI 12. MAÍ 2023

Hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja (þ.e. með 50 launamenn eða fleiri), þar sem stjórnarmenn voru fjórir eða fleiri, var 41,8% í tilfelli almennra hlutafélaga á árinu 2022 og 38,3% í einkahlutafélögum. Í stjórnum með þrjá stjórnarmenn var hlutfall kvenna 38,3% fyrir almenn hlutafélög og 33,6% fyrir einkahlutafélög. Í einkahlutafélögum með tvo stjórnarmenn var tilsvarandi hlutfall 21,0%.

Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja fór hækkandi fram til ársins 2014 en hefur haldist nokkuð óbreytt síðan þá. Almennt má merkja að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hækki með bæði stærð stjórna og félaga (talið í fjölda launamanna). Þá er hlutfallið hærra í almennum hlutafélögum en í einkahlutafélögum.

Blandað kynjahlutfall í stjórn
Ef litið er til fyrirtækja sem hafa 50 launamenn eða fleiri hefur þeim félögum sem hafa blandað hlutfall kynja í stjórn farið fjölgandi á síðustu árum. Árið 2010 var hlutfall þeirra félaga, sem höfðu að minnsta kosti einn stjórnarmann af hvoru kyni (fyrir tveggja og þriggja manna stjórnir) eða höfðu hlutfall kvenna á meðal stjórnarmanna á bilinu 40%-60% (fyrir stjórnir með fjóra eða fleiri stjórnarmenn), á bilinu 20% (einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir) til 45% (almenn hlutafélög með þriggja manna stjórnir).

Á liðnu ári var sama hlutfall á bilinu 76,7% (einkahlutafélög með fjóra eða fleiri stjórnarmenn) til 92,5% (almenn hlutafélög með þrjá stjórnarmenn), mismunandi eftir rekstrarformi og stærð stjórnar. Einkahlutafélög með tveggja manna stjórnir skera sig þó úr þar sem hlutfall einkahlutafélaga með stjórnarmann af sitt hvoru kyni var 42,0%. Þetta hlutfall fór jafnt og þétt lækkandi frá 2018 þegar nærri helmingur félaga með yfir 50 launamenn og tvo stjórnarmenn var með stjórnarmenn af sitthvoru kyni þar til í fyrra þegar það var 34,2% og hafði þá ekki verið lægra síðan 2013.

Árið 2010 voru sett lög þar sem kveðið er á um það að þegar stjórnarmenn eru þrír í félagi, þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli, skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skuli hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Þessi lög taka til almennra og opinberra hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu- og sameignarfélaga. Í tilfelli einkahlutafélaga er jafnframt tiltekið að hvort kyn skuli eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórnarmenn eru tveir. Þessi lög tóku gildi í september árið 2013.

Stjórnarformenn og framkvæmdastjórar
Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra stendur nánast í stað á milli ára (24,0%) eftir hægfara aukningu allt frá 1999. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var 25,0% í lok árs 2022.

Einn einstaklingur skráður „kynsegin/annað“ í Þjóðskrá var framkvæmdastjóri fyrirtækis á árinu 2022. Enginn einstaklingur með kynsegin/aðra skráningu gegndi stjórnarformennsku eða sat í stjórn fyrirtækis á árinu 2022.

Tölur um fjölda stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra eru birtar eftir kyni og aldri, atvinnugrein og stærð fyrirtækis og tölur um stjórnarmenn eru auk þess birtar eftir rekstrarformi og stærð stjórnar. Kyn fer eftir skráningu kyns í Þjóðskrá Íslands. Fylgt er orðalagi sem ákveðið var í samvinnu við Samtökin '78. Frá síðustu birtingu hafa bæst við ítarlegri gögn um virkni fyrirtækja árið 2021 og hafa fyrri tölur verið uppfærðar með tilliti til þess.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.