Rúmur fjórðungur stjórnarmanna fyrirtækja, sem greiða laun og skráð eru í hlutafélagaskrá, voru konur í lok árs 2019 eða 26,5%. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja var á bilinu 21,3% til 22,3% á árunum 1999 til 2006, hækkaði svo í 25,5% árið 2014 og hefur verið um 26% síðustu ár.
Konur voru 34,7% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 launþega eða fleiri árið 2019 sem er hækkun um 1,1 prósentustig frá fyrra ári. Til samanburðar var hlutfall þeirra í stjórnum stórra fyrirtækja 12,7% árið 2007 og 9,5% árið 1999. Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn, og tóku þau að fullu gildi í september 2013. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 launþega er 26,1% og hækkaði um 0,2 prósentustig frá fyrra ári.
Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkar lítillega á milli ára (23,0%) sem fylgir eftir hægfara aukningu allt frá 1999. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var 24,3% í lok árs 2019.
Tölur um fjölda stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra eru birtar eftir kyni og aldri, atvinnugrein og stærð fyrirtækis. Frá síðustu birtingu hafa bæst við ítarlegri gögn um virkni fyrirtækja árið 2018. Tölur fyrir 2018 hafa verið uppfærðar með tilliti til þess.