FRÉTT FYRIRTÆKI 15. JANÚAR 2024

Heildarútgjöld til rannsókna- og þróunarstarfs (R&Þ) á árinu 2022 námu tæplega 101 milljarði króna sem jafngildir 2,66% af vergri landsframleiðslu (VLF). Árið 2021 námu útgjöld til R&Þ ríflega 91 milljarði króna (2,80%). Hlutfallsleg útgjöld til rannsókna og þróunar af vergri landsframleiðslu drógust því saman um 0,14 prósentustig á milli ára.

Gagnasöfnun Hagstofunnar nær yfir fyrirtæki, sjálfseignastofnanir, háskólastofnanir og aðrar opinberar stofnanir. Skiptust heildarútgjöldin þannig að útgjöld fyrirtækja og sjálfseignastofnana voru 73 milljarðar króna, útgjöld háskólastofnana voru ríflega 25 milljarðar og heildarútgjöld annarra opinberra stofnana 2,8 milljarðar.

Um gögnin
Gögnunum er safnað árlega frá háskólastofnunum og öðrum opinberum stofnunum. Gagnasöfnun fyrirtækja og sjálfseignarstofnana fer fram annað hvert ár og snúa þá spurningar annars vegar að útgjöldum liðins árs og hins vegar að áætluðum útgjöldum þess árs sem listinn er lagður fyrir. Tölum fyrir árið 2022 var safnað á þriðja ársfjórðungi þess árs frá fyrirtækjum og sjálfseignastofnunum en á öðrum ársfjórðungi 2023 frá háskólastofnunum og öðrum opinberum stofnunum.

Tölur um heildarútgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru háðar breytingum á útreikningum á landsframleiðslu en jafnframt geta tölur fyrri ára verið uppfærðar í kjölfar síðari gagnasafnana.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.