FRÉTT FYRIRTÆKI 20. MAÍ 2020

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í janúar-febrúar 2020 gefur góða mynd af stöðu mála áður en áhrifa Covid-19 fór að gæta.

Minni velta í sjávarútvegi og málmiðnaði
Velta í fiskveiðum og vinnslu sjávarafurða var 14,5% minni í janúar-febrúar 2020 en á sama tímabili 2019. Á sama tímabili minnkaði velta í heild- og umboðsverslun með fisk (-11,4%) og í framleiðslu málma (-13,9%).

Hægði á byggingaframkvæmdum
Velta í „Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu“ var 7,2% minni í janúar-febrúar 2020 en sömu mánuði 2019. Hins vegar var velta sl. 12 mánuði, mars 2019-febrúar 2020, svipuð og næstu 12 mánuði þar á undan.

Samdráttur í greinum tengdum ferðaþjónustu
Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu var 9,9% minni í janúar-febrúar 2020 en sömu mánuði 2019. Mest var lækkunin í bílaleigu (-16,9%), hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggendum (-12,9%), og í farþegaflutningum (-27,8% til -13,1%).

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna)
  Jan.-feb. 2019 Jan.-feb. 2020 Breyting, % Mars 2018 - feb. 2019 Mars 2019 - feb. 2020 Breyting, %
Alls án lyfjaframleiðslu¹ 675 663 -1,7 4.596 4.627 0,7
Landbúnaður og skógrækt² .. .. .. 52 52 -0,1
A-031/C-102 Fiskveiðar og vinnsla sjávarafurða 63 54 -14,5 359 384 6,9
A-032 Fiskeldi 4 7 75,9 16 31 92,5
C-24 Framleiðsla málma 43 37 -13,9 256 228 -10,9
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma 62 73 17,5 433 451 4,0
D/E Veitustarfsemi 32 32 1,7 189 192 1,5
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 47 44 -7,2 360 363 0,7
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 22 20 -11,4 161 144 -10,6
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 44 39 -11,4 240 253 5,5
G-4671 Olíuverslun 20 19 -3,3 137 148 8,3
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 58 58 0,4 371 392 5,7
G-47 Smásala 70 72 2,8 480 498 3,8
H Flutningar og geymsla 59 53 -10,7 487 417 -14,4
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 25 24 -1,4 202 198 -1,8
J Upplýsingar og fjarskipti 36 38 6,6 227 236 4,1
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 6 5 -16,9 51 47 -7,8
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 15 13 -12,9 114 112 -2,0
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi 2 3 12,5 16 16 3,7
Aðrar atvinnugreinar 65 71 8,5 444 463 4,3
¹ Velta skv. virðisaukaskattskýrslum er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein.
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu (milljarðar króna)
  Jan.-feb. 2019 Jan.-feb. 2020 Breyting, % Mars 2018 - feb. 2019 Mars 2019 - feb. 2020 Breyting, %
Alls 80 72 -9,9 676 608 -10,1
511: Farþegaflutningar með flugi 31 27 -13,1 280 224 -19,9
55: Rekstur gististaða 11 11 -1,7 102 99 -3,2
56: Veitingasala og -þjónusta 14 14 -1,2 100 100 -0,4
7711: Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 6 5 -16,9 51 47 -7,8
79: Ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og bókunarþjónusta (erlendis) 2 2 12,8 17 17 -0,3
79: Ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og bókunarþjónusta (á Íslandi) 13 11 -16,8 97 95 -2,2
493: Farþegaflutningar á landi 3 3 -16,2 23 21 -9,2
501, 503: Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám 0 0 -27,8 5 5 -5,1

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 11. mars sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 805,7 milljarðar króna í nóvember-desember 2019 sem var 0,84% lækkun frá sama tímabili árið 2018. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 807,8 milljarðar sem er 0,58% lækkun milli ára.

Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.