FRÉTT FYRIRTÆKI 30. OKTÓBER 2020

Minni velta var í flestum atvinnugreinum á tímabilinu júlí-ágúst 2020 en á sama tímabili árið áður samkvæmt virðisaukaskattskýrslum. Mest lækkun var hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum (-82%), í rekstri gististaða (-64%) og í flutningum og geymslu (-49%).

Í nokkrum atvinnugreinum var meiri velta á tímabilinu júlí-ágúst 2020 en á sama tímabili árið áður. Velta jókst í smásölu (+7%) og heildverslun að undanskilinni fisk- og olíuverslun (+4%).

Sveiflukennd velta í bílasölu
Velta í sölu og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum var 12% meiri á tímabilinu júlí-ágúst 2020 en á sama tímabili ári áður, en velta í viðgerðum og sölu varahluta minnkaði um 3% á meðan velta í sölu vélknúinna ökutækja jókst um 17%. Velta í sölu vélknúinna ökutækja hefur sveiflast mikið á þessu ári, t.d. var veltan í maí-júní 2020 19% lægri en á sama tímabili í fyrra og í heild hefur velta í þessari grein verið minni en í fyrra.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum (milljarðar króna)
  Júlí-ágúst 2019 Júlí-ágúst 2020 Breyting, % Sept. 2018 - ágúst 2019 Sept. 2019 - ágúst 2020 Breyting, %
Alls án lyfjaframleiðslu1 821 718 -13 4,640 4,328 -7
Landbúnaður og skógrækt2 .. .. .. 52 53 3
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 66 70 6 403 414 3
C-24 Framleiðsla málma 38 34 -10 251 219 -13
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma 71 69 -3 434 426 -2
D/E Veitustarfsemi 30 32 6 194 195 1
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 66 61 -9 367 346 -6
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 25 28 12 149 140 -6
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 39 39 1 257 244 -5
G-4671 Olíuverslun 32 21 -33 147 120 -18
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 66 69 4 373 386 4
G-47 Smásala 89 96 7 492 517 5
H Flutningar og geymsla 88 45 -49 435 314 -28
I55 Rekstur gististaða 28 10 -64 102 58 -43
I56 Veitingasala og -þjónusta 20 15 -24 101 83 -17
J Upplýsingar og fjarskipti 37 37 -1 245 254 3
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 12 8 -30 51 36 -29
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 29 5 -82 116 56 -51
Aðrar atvinnugreinar 81 77 -5 473 466 -1
1 Velta skv. virðisaukaskattskýrslum er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein.
2 Margir bændur skila virðisaukaskattskýrslu hálfsárslega og hafa lengri skilafrest en aðrir. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 27. ágúst sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, landbúnaði og skógrækt, talin vera 677,0 milljarðar króna í júní-júlí 2020 sem var 14,46% lækkun frá sama tímabili árið 2019. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 679,5 milljarðar sem er 14,15% lækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.